Viðskiptablaðið greindi fyrst frá jólabónus App Dynamic.
Velta fyrirtækisins nam 1,4 milljarði árið 2022 og var hagnaður um 585 milljónir króna. Í nýlegri frétt VB kom fram að tíu ársverk voru unnin í fyrra og fyrir það greiddar 129 milljónir króna sem svarar til rúmlega 1,1 milljón króna í laun.
App Dynamic tók skrefið frá hugbúnaðarfyrirtæki yfir í tæknifyrirtæki á árinu þegar það hannaði sinn eigin vélbúnað frá grunni í fyrsta sinn fyrir komandi flaggskip sitt, AirServer Connect 3.
Sonur verksmiðjueigenda heillaðist af Íslandi
Pratik Kumar, framkvæmdastjóri App Dynamic, stofnaði fyrirtækið árið 2011. Fyrirtækið var fyrst með aðstöðu í nítjándu hæð turnsins á Smáratorgi en er í dag til húsa í Katrínartúni 2, betur þekkt sem Höfðatorg.
Pratik er af indversku bergi brotinn og kom til Íslands árið 1999, aðeins 22 ára gamall. Í viðtali við Vísi árið 2011 lýsti hann því hvernig hann endaði hér á landi.
„Eins og allir Indverjar vildi ég reyna fyrir mér í Bandaríkjunum. Foreldrar mínir áttu nokkrar verksmiðjur í Nýju-Delí og hjá þeim starfa 150 manns. Mig skorti ekkert og ég þurfti ekki að fara. En eftir háskólanám í verkfræði langaði mig ekki til að vinna fyrir föður minn og framleiða íhluti fyrir bíla. Mér fannst menntunin nýtast á öðrum vettvangi og ákvað að reyna fyrir mér annars staðar,“ sagði Pratik í viðtalinu.
Hann skráði sig í skiptinemaprógram sem gerði honum kleift að velja úr nokkrum löndum. Ísland varð fyrir valinu og þegar hann kom til landsins bauðst honum að vinna hjá tölvufyrirtækinu Oz, þá eitt mest spennandi tæknifyrirtæki landsins.
Pratik ílengdist á Íslandi, er með íslenskan ríkisborgararétt og hefur stofnað til fjölskyldu. Eftir að hafa unnið hjá Arion banka ákvað hann að slá til og stofna App Dynamic og árangurinn lét ekki á sér standa. Eins og hann orðaði það í viðtalinu 2011: „Bandaríkin heilla ekki lengur.“