En nú er öldin önnur. Því í tísku hjá unga fólkinu er að segja upp í beinni útsendingu á Tik Tok.
Að minnsta kosti víða erlendis.
BBC Worklife rýnir í málin í nýlegri grein. Þar sem uppsagnirnar eru settar í samhengi við þá þróun að atvinnulífið um flest alla veröld er að fara í gegnum tímabilið Stóra uppsögnin. Þar sem mun fleiri en nokkru sinni áður eru að færa sig um set á milli starfa og jafnvel starfsgreina og samkeppni harðnar með hverjum deginum fyrir vinnuveitendur sem vilja halda í gott fólk.
En hvað er í gangi með unga fólkið og TikTok?
Í fyrrgreindri grein segir að þetta trend hafi byrjað með myndbandi sem birt var á TikTok í júlí 2021. Ungur starfsmaður McDonalds sagði þá upp í beinni á TikTok og til að gera langa sögu stutta sló myndbandið einfaldlega í gegn um allan heim.
Það sama gerðist haustið 2022. Þá sýndi 31 árs gamall Ástrali í opinbera geiranum frá því þegar hún sendi uppsagnarbréfið sitt í tölvupósti og beið síðan í angist eftir því að heyra í yfirmanninum.
Í myndbandinu lýsir hún því hvernig henni leið að taka þessa ákvörðun að segja upp. Þar sem togstreitan snerist um annars vegar að vilja hætta í vinnunni en hins vegar að vilja ekki bregðast liðsheildinni og samstarfsfélögunum.
Fleiri dæmi eru rakin. Sem segja sögu ungs fólks sem segir upp starfi sínu og lýsir líðan sinni með þeirri ákvörðun. Fyrir og eftir að ákvörðunin er tekin.
Til dæmis að finna létti við að vera búin að segja upp.
En upplifa samhliða ákveðna sorg yfir því að vera að fara að kveðja.
Eflaust hrista einhverjir höfuðið núna. Segja að unga fólkið hreinlega geri ekki neitt án þess að það rati á samfélagsmiðlana. Þetta sé kynslóðin sem hreinlega kunni ekkert annað.
Sem er að vissu leyti rétt. Því ungt fólk á vinnumarkaði í dag er af þeirri kynslóð að hafa alist upp með samfélagsmiðlum og finnast eðlilegt og sjálfsagt að birta þar alls kyns efni og nokkurn veginn allt sem fólki dettur í hug.
Meira kann þó að liggja að baki. Því samkvæmt rannsóknum eru það yngri kynslóðirnar á vinnumarkaði sem sýna sterkar vísbendingar um að breytingar í atvinnulífi framtíðarinnar verði verulegar miðað við það sem lengi hefur verið.
Til dæmis er um það rætt í grein BBC að aldamótakynslóðin og Z-kynslóðin, séu þær kynslóðir sem ætla ekki að feta í fótspor foreldra sinna. Sem lögðu allt í að vinna og koma sér upp heimili og starfsframa með skuldum og álagi.
Lentu síðan í bankahruninu.
Og enn síðar í Covid.
Þessar ungu kynslóðir leggja meiri áhreslu á andlega heilsu, hamingju og starfsánægju í samanburði við eldri kynslóðir.
Ef vinnustaðirnir uppfylla ekki væntingar um þessi lykilatriði, hættir fólk einfaldlega.
Þá fylgir það sögunni að helstu skýringin sem fólk gefur um hvers vegna það birtir myndband af sér að segja upp, sé til þess að opna umræðuna um það hvernig upplifun og líðan það er, að segja upp starfi sínu.
Hver langtímaáhrifin verða af þessu trendi á TikTok á enn eftir að koma í ljós. Til dæmis hefur lítið reynt á það enn svo vitað sé, hvort það geti haft áhrif á frekari starfstækifæri ef á veraldarvefnum einhvers staðar hefur birst uppsögn í beinni.
Þó er ljóst að útbreiðsla og vinsældir þessara myndbanda eru vísbending um að margt kunni að breytast í framtíðinni hvað varðar uppsagnir og fleira á vinnustöðum.
Að slík mál teljist einkamál eða trúnaðarsamtöl á milli starfsmanns og yfirmanns kann til dæmis að heyra sögunni til.
Hér má sjá myndband þar sem ung kona segir upp vinnunni og lýsir því hvernig henni líður mínúturnar fyrir og eftir.
Fleiri má sjá undir myllumerkinu #quittok.