Smá kvef, hausverkur eða flensa og vinnan Rakel Sveinsdóttir skrifar 22. október 2025 07:01 Fólk sem elskar vinnuna sína er gjarnt á að mæta í vinnuna þótt það sé slappt eða hálf veikt. Og það sem verra er: Til viðbótar við smithættu veikinda á vinnustað, er fólk þá oft ómeðvitað að hafa þau áhrif á vinnustaðamenninguna að samstarfsfólk fer að gera slíkt hið sama. Vísir/Getty Þótt vitað sé að ákveðinn hópur fólks stundi að misnota veikindaréttinn sinn í vinnunni, sýna rannsóknir það víða um heim að meirihluti fólks á það til að mæta í vinnuna, þótt það sé veikt.
Eða nokkurn veginn veikt. Því stundum finnst okkur við ekki beint vera veik: Erum með smá kvef, hausverk, vott af einhverri flensu en þó ekki það slöpp að við séum rúmliggjandi. Förum því í vinnuna, hóstum og snýtum okkur allan daginn en reynum að standa okkar pligt. En hversu skynsamlegt er þetta? Og hvers vegna á fólk það til að mæta í vinnu þegar það er í raun hálf veikt? Ekki síst með tilliti til þess að auðvitað aukum við á líkurnar á að bati dragist á langinn ef við höldum okkur ekki heima. Það sama á við ef við erum of fljót á því að snúa til vinnu eftir veikindi. Í grein BBC hér um árið, segir sérfræðingur að fólk sem einfaldlega elskar vinnuna sína eða sýnir merki um að vera vinnualkar, er akkúrat sá hópur sem er mjög líklegur til að mæta hálf slappt í vinnuna. Þegar það ætti helst að vera heima. En það sem verra er: Oft er þessi hópur fólks í stjórnendastöðu. Sem þýðir að annað starfsfólk er þá líklegra til að gera slíkt hið sama. „Ef yfirmaðurinn þinn sýnir ítrekað þá hegðun að mæta hálf veikur í vinnuna, getur starfsfólki fundist eins og það sama sé ætlast til af þeim,“ er haft eftir sérfræðingnum. Því já; eftir höfðinu dansa víst limirnir. Samkvæmt umræddri grein, eykur það sum sé líkurnar á því að fólk mæti hálf slappt í vinnuna ef viðhorf stjórnenda og/eða annarra í vinnunni er þannig að fólk upplifir ákveðna pressu á sér að mæta þrátt fyrir vanlíðan eða veikindi. Eitthvað sem okkur hefði þó alls ekki dottið í hug í Covid! Því ef heimsfaraldurinn kenndi okkur eitthvað mjög vel, þá er það einmitt það að smithættan er alltaf til staðar. Og engum greiði gerður ef við smitum aðra af veikindum. Smá kvefi eða öðru. Að halda sig heima við í einn til tvo daga, er því alltaf miklu skynsamlegri lausn. Fyrir okkur sjálf, undirmenn okkar, samstarfsfólk og/eða aðra. Enda væntanlega ekkert okkar sem vill hafa þau áhrif á vinnustaðamenninguna að annað fólk fer líka að mæta veikt til vinnu. Eða hvað? En hvað þá með þann hóp fólks sem ekki hefur efni á veikindadögunum? Starfar sjálfstætt og fær ekki laun greidd ef það skilar ekki af sér vinnu. Hér þarf auðvitað hver og einn að meta stöðuna fyrir sig. Fjölmargar rannsóknir sýna samt fram á að þegar við erum slöpp eða veik, erum við ekki með fulla afkastagetu. Sem dæmi má nefna rannsókn á 1.278 fullorðnum vinnandi einstaklingum tímabilið 2012-2016 sem sýndi að meðaltals framleiðniskerðingin okkar ef við erum með flensu er 67-74%. Eftir stendur því spurningin: Hversu mikið gagn er af okkur veikum og hversu fljót værum við að vinna sömu verk þegar við erum orðin hress?
Heilsa Góðu ráðin Vinnustaðurinn Vinnumarkaður Tengdar fréttir X-kynslóðin: Oft gleymd en ómissandi Það er svo mikið talað um Z-kynslóðina að aðrar kynslóðir falla eiginlega í skuggann. Ekki síst X-kynslóðin, sem þó er ein sú mikilvægasta á vinnumarkaði í dag: Fædd tímabilið 1965-1979 og á því heillangan tíma eftir á vinnumarkaði. 10. október 2025 07:02 Óvæntur atvinnumissir: Óttinn verstur en mörg góð ráð Það er hægt að finna mörg góð ráð á netinu sem geta hjálpað til við að takast á við óvæntan atvinnumissi. Svo ekki sé talað um góðu ráðin sem gervigreindin getur hjálpað til með. 3. október 2025 07:03 Ekki of seint að breyta starfsframa eða vinnu eftir fimmtugt Það er svo mikið talað um hversu erfitt það er fyrir fólk eftir fimmtugt að fá vinnu, að eflaust þora sumir á þessum aldri ekki einu sinni að hugsa þá hugsun til enda að segja upp í vinnunni sinni. Þótt fólk sé kannski orðið dauðþreytt á starfinu og dreymir alla daga um eitthvað annað. 26. september 2025 07:02 Að líða eins og svikara í vinnunni Ein af fjölmörgum góðum greinum Harvard Business Review hefst á fyrirsögninni: Þú ert enginn svikari, þú ert frábær (e. You're Not an Imposter. You're Actually Pretty Amazing). 26. september 2025 07:02 Að púsla saman vinnu, aukavinnu og lífinu Flest okkar þekkjum það að vinna með námi. Þar sem skólinn var í rauninni starf númer eitt en síðan var það vinnan með skólanum. Sem oftar en ekki skipti okkur jafnvel meira máli því þannig fengum við pening til að lifa! 27. ágúst 2025 07:02 Mest lesið Ágreiningur í Peningastefnunefnd um síðustu vaxtalækkun Viðskipti innlent Allir í limbói vegna fyrirhugaðra breytinga á vörugjaldi Viðskipti innlent Bíða enn eftir tæpri milljón í endurgreiðslu eftir fall Play Neytendur Hægt að fækka veikindadögum með réttu raka- og hitastigi Viðskipti innlent Orðin hluti af mannlífinu: „Án okkar væri heldur tómlegt að vera til“ Viðskipti innlent Funda með starfsmönnum Vélfags um framhaldið Viðskipti innlent Mikil eftirvænting á Hellu fyrir opnun Bæjarins bestu Viðskipti innlent Jafnvægi heimilis og vinnu: „Lífið er meira en titill“ Atvinnulíf Högnuðust um rúma tvo milljarða Viðskipti innlent Sögðu upp öllum starfsmönnum Vélfags sem eftir voru Viðskipti innlent Fleiri fréttir Jafnvægi heimilis og vinnu: „Lífið er meira en titill“ „Hann bókstaflega argar á mig þangað til ég fer fram úr“ Örgleði (ekki öl-gleði) Einkenni gervigreindar-kvíða og góð ráð Kaflaskil: „Allt í einu er ekkert í dagatalinu“ „Af hverju fara Hafnfirðingar með stiga í búð?“ Hvort ætli A eða B týpurnar séu betri í vinnu? Ungum konum fjölgar í lögreglunni „Í fréttum lítur þetta allt saman nokkuð vel út, en...“ Ekki grínast um uppsagnir, hnýsast um samtölin eða baktala Öll heimilisverk skemmtileg nema eitt Áhrif foreldra á starfsframa og velgengni barna sinna Að byrja að vinna á ný í sorg „Ég gríp eiginlega strax í hina heilögu tvennu“ Sjá meira
X-kynslóðin: Oft gleymd en ómissandi Það er svo mikið talað um Z-kynslóðina að aðrar kynslóðir falla eiginlega í skuggann. Ekki síst X-kynslóðin, sem þó er ein sú mikilvægasta á vinnumarkaði í dag: Fædd tímabilið 1965-1979 og á því heillangan tíma eftir á vinnumarkaði. 10. október 2025 07:02
Óvæntur atvinnumissir: Óttinn verstur en mörg góð ráð Það er hægt að finna mörg góð ráð á netinu sem geta hjálpað til við að takast á við óvæntan atvinnumissi. Svo ekki sé talað um góðu ráðin sem gervigreindin getur hjálpað til með. 3. október 2025 07:03
Ekki of seint að breyta starfsframa eða vinnu eftir fimmtugt Það er svo mikið talað um hversu erfitt það er fyrir fólk eftir fimmtugt að fá vinnu, að eflaust þora sumir á þessum aldri ekki einu sinni að hugsa þá hugsun til enda að segja upp í vinnunni sinni. Þótt fólk sé kannski orðið dauðþreytt á starfinu og dreymir alla daga um eitthvað annað. 26. september 2025 07:02
Að líða eins og svikara í vinnunni Ein af fjölmörgum góðum greinum Harvard Business Review hefst á fyrirsögninni: Þú ert enginn svikari, þú ert frábær (e. You're Not an Imposter. You're Actually Pretty Amazing). 26. september 2025 07:02
Að púsla saman vinnu, aukavinnu og lífinu Flest okkar þekkjum það að vinna með námi. Þar sem skólinn var í rauninni starf númer eitt en síðan var það vinnan með skólanum. Sem oftar en ekki skipti okkur jafnvel meira máli því þannig fengum við pening til að lifa! 27. ágúst 2025 07:02