Hvort ætli A eða B týpurnar séu betri í vinnu? Rakel Sveinsdóttir skrifar 21. nóvember 2025 09:03 Sumir segjast B-týpur, finnst gott að vaka frameftir og komast jafnvel í sitt besta stuð til að vinna þá. Á meðan aðrir sofna snemma og finnst morgnarnir langbestir til vinnu. Hvort ætli sé betra að vera A eða B týpa? Vísir/Getty Það hlýtur að hljóma auðveldara í eyrum margra, að vera A týpa. Sofna snemma á kvöldin, vera alveg til í að vakna snemma og allt sem heitir að halda í snús-takkann eins lengi og hægt er hvern morgun, er óþarfi.
En er það svo? Því sitt sýnist hverjum um hvort er betra; að vera A eða B týpa. Rannsóknir sýna til dæmis að það að vera B-týpa getur verið hið besta mál fyrir heilann. Í umfjöllun The Guardian frá í fyrra, segir frá rannsókn sem náði til 26 þúsund manns. Allir sem tóku þátt, höfðu þá þegar þreytt próf sem mældi greind, rökhugsun, viðbragð og minni. Vísindamennirnir skoðuðu þessu til viðbótar síðan allt um svefninn. Hvort fólk væri A eða B týpur, í hversu marga klukkutíma fólk var að sofa, hver gæði svefnsins er, hvernig svefnvenjurnar voru og svo framvegis. Allt þetta var síðan sett í samhengi við áhrif svefns á heila. Sem þegar var vitað að eru umtalsverð. Í niðurstöðunum kom hins vegar fram að fólk sem vakir lengur á kvöldin, eru B-týpur eins og við köllum það, virðast skara fram úr í athygli og minni, svo eitthvað sé nefnt. B-týpurnar virðast líka skara fram úr í getunni til að læra eða beita rökhugsun. Hér skal þó áréttað að langbesta niðurstaðan byggir alltaf á því að fólk fái nægan svefn; sofi í sjö til níu klukkustundir á nóttu. Það telst nú varla slæmt að teljast skara svona fram úr í vitsmunalegri getu og því hljóta B-týpurnar að vera sigri hrósandi yfir fréttunum. En eins og í öllu, er aldrei hægt að staðhæfa um of um neitt. Því í grein sem Forbes birti í vor, kemur fram að samkvæmt rannsóknum teljast A-týpurnar afkastameiri og lausnamiðaðri en fólk sem vakir lengi fram eftir. Og það sem meira er: Morgunhanarnir mælast almennt ánægðari með lífið, eru hamingjusamari. Á móti kemur er að náttuglubhópurinn, B-týpurnar, virðast skáka öðrum hópum þegar kemur að sköpun og hugmyndaauðgi. Enda löngum alkunna að listafólk er margt þekkt fyrir að vera miklar B-týpur.
Vinnumarkaður Tengdar fréttir Ekki grínast um uppsagnir, hnýsast um samtölin eða baktala Það kólnar í hagkerfinu og við erum að sjá tíðari fréttir um uppsagnir í atvinnulífinu. Því miður. Þessu tengdu hefur Atvinnulífið fengið ýmiss góð ráð frá sérfræðingum. 17. nóvember 2025 07:02 Áhrif foreldra á starfsframa og velgengni barna sinna Þegar við hugsum um leiðtoga hugsum við um forstjóra, framkvæmdastjóra, þjálfara eða stjórnmálafólk. 14. nóvember 2025 07:03 Smá kvef, hausverkur eða flensa og vinnan Þótt vitað sé að ákveðinn hópur fólks stundi að misnota veikindaréttinn sinn í vinnunni, sýna rannsóknir það víða um heim að meirihluti fólks á það til að mæta í vinnuna, þótt það sé veikt. 22. október 2025 07:01 Næsti yfirmaðurinn þinn gæti verið gervigreind Nú þegar heilu bíómyndirnar eru framleiddar án mannfólks er það að verða sýnilegra með hverjum deginum, hvernig gervigreindin mun taka yfir ólíklegustu hlutverk í atvinnulífinu.Þar á meðal hlutverk stjórnenda. 17. október 2025 07:02 X-kynslóðin: Oft gleymd en ómissandi Það er svo mikið talað um Z-kynslóðina að aðrar kynslóðir falla eiginlega í skuggann. Ekki síst X-kynslóðin, sem þó er ein sú mikilvægasta á vinnumarkaði í dag: Fædd tímabilið 1965-1979 og á því heillangan tíma eftir á vinnumarkaði. 10. október 2025 07:02 Mest lesið Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Viðskipti innlent Himneskt ei meir Viðskipti innlent Kaupa CCP aftur frá Kóreu Viðskipti innlent Gluggaþvottur og þakrennuhreinsun fyrir sumarið Samstarf Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Viðskipti innlent Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Fleiri fréttir Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Fullt af fólki að vinna við eitthvað sem skiptir ekki máli Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari „Alltaf að líða þannig í vinnunni þinni að þú skiptir máli“ Stundum þarf einfaldlega að segja: „Afsakaðu þetta“ Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér Hagkvæmt að ráða krabbameinssjúklinga í vinnu Húsið sem næstum gleymdist: „Eins og kýlt í hjartað á mér“ Alltaf jafn hressandi að fara út og tala aðeins við hundinn Moldrík með ADHD: Hafa getuna til að horfa út fyrir boxið Sjá meira
Ekki grínast um uppsagnir, hnýsast um samtölin eða baktala Það kólnar í hagkerfinu og við erum að sjá tíðari fréttir um uppsagnir í atvinnulífinu. Því miður. Þessu tengdu hefur Atvinnulífið fengið ýmiss góð ráð frá sérfræðingum. 17. nóvember 2025 07:02
Áhrif foreldra á starfsframa og velgengni barna sinna Þegar við hugsum um leiðtoga hugsum við um forstjóra, framkvæmdastjóra, þjálfara eða stjórnmálafólk. 14. nóvember 2025 07:03
Smá kvef, hausverkur eða flensa og vinnan Þótt vitað sé að ákveðinn hópur fólks stundi að misnota veikindaréttinn sinn í vinnunni, sýna rannsóknir það víða um heim að meirihluti fólks á það til að mæta í vinnuna, þótt það sé veikt. 22. október 2025 07:01
Næsti yfirmaðurinn þinn gæti verið gervigreind Nú þegar heilu bíómyndirnar eru framleiddar án mannfólks er það að verða sýnilegra með hverjum deginum, hvernig gervigreindin mun taka yfir ólíklegustu hlutverk í atvinnulífinu.Þar á meðal hlutverk stjórnenda. 17. október 2025 07:02
X-kynslóðin: Oft gleymd en ómissandi Það er svo mikið talað um Z-kynslóðina að aðrar kynslóðir falla eiginlega í skuggann. Ekki síst X-kynslóðin, sem þó er ein sú mikilvægasta á vinnumarkaði í dag: Fædd tímabilið 1965-1979 og á því heillangan tíma eftir á vinnumarkaði. 10. október 2025 07:02