Starfsframi

Fréttamynd

„Sé fyrir mér að fara að vinna færri daga og öðru­vísi verk­efni“

„Við vorum svo dugleg að ræða þetta allt fyrir fram,“ segir Rannveig Rist forstjóri Rio Tinto álversins í Straumsvík og gefur okkur um leið innblástur fyrir það hvernig ungt fólk getur mætt þriðju vaktinni svokallaðri; með markvissum samskiptum um hver á að gera hvað, hverjum finnst skemmtilegast að gera hvað og hver er bestur í hverju.

Atvinnulíf
Fréttamynd

Þriðja barnið er æðis­legur íshellir

„Já mamma er algjör nagli,“ segir Birgitta Björg Jónsdóttir kát. Sjálf eflaust ekkert síðri nagli því Birgitta er framkvæmdastjóri Into the Glacier, snjóbrettakappi, gift tveggja barna móðir sem hjólar í vinnuna allan ársins hring: Frá Hafnarfirði í Klettagarða við Sæbraut!

Atvinnulíf
Fréttamynd

Mjög mikil­vægt að eiga besta vin í vinnunni

„Það getur svo sem vel verið að einhverjir vinnuveitendur hugsi sem svo; Mér er skítsama hvort fólk eigi einhvern besta vin í vinnunni, ég vil bara að fólk sé að vinna!“ nefnir Tómas Bjarnason sviðstjóri stjórnenda- og vinnustaðaráðgjafar Gallup sem dæmi um viðhorf vinnuveitanda sem telur það ekki sitt hlutverk að spá í hvort starfsfólk eigi sinn besta vin í vinnunni.

Atvinnulíf
Fréttamynd

Lausnamiðuð feril­skrá og að þora

Til fjölda ára hafa rannsóknir sýnt að karlmenn eru líklegri til að láta vaða og sækja um störf, þótt þeir uppfylli ekki allar hæfniskröfur. Konur eru aftur á móti líklegar til að sækja ekki um störf nema þær uppfylli hvert einasta atriði sem listað er upp og helst rúmlega það.

Atvinnulíf
Fréttamynd

Láttu rétta fólkið taka eftir þér í vinnunni

Við þekkjum öll orðatiltækið: Að láta verkin tala. Sem er reyndar nokkuð vinsælt orðatiltæki og rímar vel við þá sannfæringu fólks um að einbeita sér frekar að því að gera vel í vinnu en að láta taka eftir sér.

Atvinnulíf
Fréttamynd

„Já veistu Gummi, þetta gæti verið eitt­hvað“

„Það hafði lengi blundað í mér að stofna mitt eigið fyrirtæki. En alltaf þegar ég nefndi einhverja hugmynd við Þóru konuna mína, svaraði hún: Nei, ég held að þetta sé ekki málið,“ segir Guðmundur Kristjánsson stofnandi Lucinity og hlær.

Atvinnulíf