Erlent

Segja stóran hluta kláms sýna refsi­vert of­beldi gegn konum

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Ráðið vill lagabreytingar til að hægt verði að sækja framleiðendur klámsins til saka.
Ráðið vill lagabreytingar til að hægt verði að sækja framleiðendur klámsins til saka. Getty

Jafnréttisráð Frakklands segir allt að 90 prósent alls kláms á netinu sýna andlegt, líkamlegt og/eða kynferðislegt ofbeldi gegn konum. Þá er það í mörgum tilvikum svo alvarlegt að hægt væri að sækja menn til saka fyrir það samkvæmt frönskum lögum.

Jafnréttisráðið skilaði skýrslu til stjórnvalda í gær þar sem hvatt er til þess að lögum verði breytt þannig að hægt verði að höfða mál gegn framleiðendum ofbeldisfulls kláms og til að greiða fyrir því að auðveldara verði að taka út efni til að vernda þá sem brotið hefur verið gegn.

Ráðið fékk til sín fjölda viðmælenda og fór yfir fjölda myndskeiða á stærstu klámsíðum heimsins. Í skýrslunni segir að í milljónum myndskeiða væri gert lítið úr konum; þær niðurlægðar, komið fram við þær á ómanneskjulegan hátt, ráðist á þær, þær pyntaðar og beittar meðferð sem gangi bæði gegn mannlegri reisn og frönskum lögum.

„Konurnar eru raunverulegar, kynlífið og ofbeldið er raunverulegt, og þjáning þeirra oft fullkomlega sjáanleg en á sama tíma gerð erótísk,“ segir í skýrslunni. Það væri mat ríkissaksóknara að mikið af ofbeldinu bryti gegn frönskum lögum.

Höfundar skýrslunnar segja verulegan hluta klámefnisins jafngilda pyntingum og að ekki sé hægt að bera við samþykki eða samkomulagi, þar sem manneskja getur ekki fallist á að sæta pyntingum, kynferðislegri misnotkun eða mansali.

Ráðið segir umrædd myndskeið hreinlega ólögleg og refsiverð.

Þá eru yfirvöld gagnrýnd fyrir aðgerðaleysi og fyrir að hafa gefið undan lobbýisma klámiðnaðarins á grundvelli tjáningarfrelsisins. Ríkið þurfi að láta af þeim ávana að horfa undan og vera í afneitun en sú tilhneiging hafi orðið til þess að klámiðnaðurinn hafi fengið að starfa eftirlitslaus.

Samkvæmt könnunum neytir 51 prósent 12 ára franskra drengja kláms í hverjum mánuði og skýrsluhöfundar segja áhorf á ofbeldisfullt klám ýta undir svokallaðan „nauðgunarkúltúr“.

Aðgerðasinnar hafa bent á að í mörgum tilvikum sé um að ræða konur á eða rétt yfir barnsaldri.

Ítarlega frétt um málið má finna hjá Guardian.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×