Segir ásakanir um þaulskipulagða glæpi mannorðsmorð Kjartan Kjartansson skrifar 8. september 2023 14:45 Ragnar Þór Ingólfsson (t.h.) dregur hæfi Björgvins Jóns Bjarnasonar (t.v.) sem forsvarsmanns lífeyrissjóðs í vafa vegna starfa hans fyrir Samskip þegar samkeppnisbrot voru framin. Vísir Samskip eru sökuð um ólöglegt samráð í flutningaþjónustu á Norðurlandi í tíð stjórnarformanns lífeyrissjóðsina Gildis sem formaður VR sakar um „þaulskipulagða glæpi“. Lífeyrissjóðsstjórinn hætti störfum hjá Samskipum áður en alvarlegustu brotin sem Samkeppniseftirlitið sektaði fyrirtækið fyrir voru framin.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, nafngreindi sérstaklega Björgvin Jón Bjarnason, stjórnarformann lífeyrissjóðsins Gildis, og Pálmar Óla Magnússon, formann stjórnar Birtu lífeyrissjóðs, í grein sem birtist á Vísi á miðvikudag. Sagði hann þá báða hafa verið lykilstjórnendur hjá Samskipum þegar samkeppnislagabrot sem fyrirtækið fékk 4,2 milljarða króna metsekt fyrir í síðustu viku áttu sér stað. „Hér fer örsaga af skipulagðri glæpastarfsemi og spillingu í íslensku samfélagi. Saga af fólki sem svindlar og fremur þaulskipulagða glæpi gegn samborgurum sínum og samfélagi. Saga af mönnum sem hafa komist til æðstu metorða yfir eftirlaunasjóðum almennings í skjóli spillingar og brota sem nær útilokað er að meta að fullu til tjóns,“ skrifaði Ragnar Þór sem setti spurningarmerki við hæfni Björgvins og Pálmars til þess að stýra lífeyrissjóðunum. Pálmar Óli var forstjóri Samskipa á hluta tímabilsins sem Samkeppniseftirlitið segir að fyrirtækið hafi átt í ólöglegu samráði við Eimskip. Hann er einn fjögurra stjórnenda fyrirtækjanna tveggja sem hafa enn stöðu sakbornings í sakamálarannsókn héraðssaksóknara á samráðinu sem hefur staðið yfir frá 2014. Björgvin hafnaði ásökunum Ragnars Þórs í svargrein á Vísi í gær og sagði verkalýðsforingjann fara með ósannindi um hlut sinn í brotum Samskipa þar sem hann starfaði sem forstöðumaður innanlandssviðs. „Kjarni málsins er sá að ég er engan veginn sekur um þau afbrot sem Ragnar Þór ætlar mér. Það er þó ekki hægt að láta smáatriði eins og eitt mannorðsmorð trufla sig ef sagan er góð,“ skrifaði Björgvin. Stjórnandi í sautján mánuði Ritdeila Ragnars Þórs og Björgvins snýst því um hvaða ábyrgð sá síðarnefndi, sem stjórnandi hjá Samskipum, bar á brotunum sem Samkeppniseftirlitið lýsti í sektarákvörðun sinni. Meginrannsóknartímabilið sem ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nær til var frá 2008 til 2013. Björgvin benti á að hann hætti hjá Samskipum í janúar árið 2007, einu til einu og hálfu ári áður en Samkeppniseftirlitið segir að alvarlegustu brotin hafi hafist. Björgvin stýrði innanlandssviðinu í sautján mánuði, frá ágúst 2005. Í andsvari við svargrein Björgvins í gær stóð Ragnar Þór við ásakanir sínar sem hann sagði fengnar beint upp úr skýrslu Samkeppniseftirlitsins. Vísaði Ragnar Þór til þess að eftirlitið hafi sagt að samráð flutningsfyrirtækjanna tveggja hefði staðið yfir mun lengur en frá 2008, allt frá árinu 2001. Ólöglegt samráð í flutningum fyrir norðan Brotin sem áttu sér stað að einhverju leyti á þeim tíma sem Björgvin starfaði fyrir Samskip eru rakin í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins og í grein Ragnars Þórs. Fyrir 2008 eru Samskip og Eimskip sögð hafa þegar átt í eftirfarandi samráði: Verðsamráð og markaðsskipting milli Samskipa og Eimskips í Hollandi sem var meðal annars til þess fallið að hafa skaðleg áhrif á útflutning á sjávarafurðum frá Íslandi. Samráð í sjóflutningum milli Íslands og annarra ríkja. Samráð í landflutningum á Norðurlandi. Samráð í skipaafgreiðslu. Aðeins síðastnefndu brotin tvö vörðuðu innanlandsstarfsemi Samskipa. Ólögmætt samráð sem Samkeppniseftirlitið telur að fyrirtækin hafi átt í um skipaafgreiðslu er sagt hafa átt sér stað að minnsta kosti frá nóvember 2007, átta mánuðum eftir að Björgvin lét af störfum. Samráð í landflutningum til Siglufjarðar er hins vegar sagt hafa átt sér stað frá ársbyrjun 2005 til júní 2008. Björgvin stýrði innanlandssviðinu hluta þess tíma. Brot Samskipa eru sögð hafa falist í samstarfi við fyrirtækið Norðurfrakt, flutningsfyrirtæki á Siglufirði, eftir að Eimskip náði yfirráðum í félaginu. Félögin hafi ákveðið sameiginlega verð sem Eimskip eða Norðurfrakt innheimti fyrir flutningaþjónustu hjá viðskiptavinum Samskipa eða í viðskiptum sem Samskip öfluðu. Brotin voru einnig talin hafa falist í samstarfinu sem slíku. Í samtali við Vísi fullyrti Björgvin að ásakanir Ragnars Þórs væru efnislega rangar og hann hefði ekki tekið þátt í neinni brotlegri starfsemi á meðan hann starfaði fyrir Samskip. Afskiptum hans af félaginu hafi lokið alfarið í janúar 2007. Reiknar ekki með því að menn hafi verið algerlega ómeðvitaðir Ragnar Þór segir við Vísi að hann byggi ásakanir sínar á því að Björgvin hafi verið lykilstjórnandi hjá Samskipum á meðan samkeppnislagabrot voru framin. Hann segist ekki vita hvað fór á milli Björgvins og annarra stjórnenda eða hversu margir séu viðriðnir svikamyllu af þessu tagi. „Hverjir gerðu nákvæmlega hvað á þeim tíma sem hann starfaði hjá fyrirtækinu verður hann að svara fyrir. Ég get ekki svarað um það. Ég reikna ekki með því, frekar en hjá öðrum fyrirtækjum, að það séu það miklir eldveggir á milli deilda og stofnana að menn hafi verið algerlega ómeðvitaðir um hvað var í gangi,“ segir formaðurinn. Hann taki orð Björgvins fyrir því að hann hafi ekkert vitað af brotunum. „Ef hann vill stefna mér fyrir meiðyrði fyrir dómi þá bara fagna ég því og er tilbúinn að mæta honum í dómsal. Ég tek því bara fagnandi og stend fyrir máli mínu þar,“ segir Ragnar Þór.
Lífeyrissjóðir Ólöglegt samráð Eimskips og Samskipa Samkeppnismál Stéttarfélög Mest lesið Ólafsson gin aftur í eigu Íslendinga Viðskipti innlent Skapa nýjar flíkur úr óseldum notuðum fötum Atvinnulíf Dramadrottningar myndu líkja Tromsö-flugi við rýting í bakið Viðskipti innlent Skiptastjóri Play kannar hvort Icelandair sé bótaskylt vegna ummæla starfsmanns Viðskipti innlent Kristín í Komið gott fær sér dagvinnu Viðskipti innlent G-vítamín eru litlu skrefin sem breyta miklu Samstarf Skiptastjóri Play þarf að víkja Viðskipti innlent Sætur borgarbíll þar til kíkt er í skottið Samstarf Taka Amaroq af markaði í Kanada Viðskipti innlent Síminn tekur upp nýtt nafn og hagnast um 1,6 milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ólafsson gin aftur í eigu Íslendinga Hagnaður af grunnrekstri nam 36 milljörðum Sölvi genginn til liðs við KAPP Líklegra en áður að nýjar íbúðir seljist undir ásettu verði Lindex-höllin verður Kappahl-höllin og ný verslun opnuð 21. mars Arkitektar og verkfræðingar vænta samdráttar á íbúðamarkaði Prófessor slær á áhyggjuraddir 74 prósent íbúða seldist á undirverði í desember Dramadrottningar myndu líkja Tromsö-flugi við rýting í bakið Opinberir starfsmenn eigi rétt á sjöfalt fleiri veikindadögum Skiptastjóri Play kannar hvort Icelandair sé bótaskylt vegna ummæla starfsmanns Hæstiréttur gefur ÁTVR á baukinn Kristín í Komið gott fær sér dagvinnu Skiptastjóri Play þarf að víkja Innkalla brúna rúllutertu Taka Amaroq af markaði í Kanada Ríkið niðurgreiddi losun Icelandair um rúmar 400 milljónir Deilt um kjör Wolt-sendla Síminn tekur upp nýtt nafn og hagnast um 1,6 milljarða Ólafur Björnsson ráðinn fjármálastjóri Inchcape á Íslandi Loka Duck & Rose á sunnudaginn „Vel skipulögð herferð“ gegn ETS-losunarkerfinu Þóra og Eva sameinaðar á ný í Efstaleitinu Erla Ósk nýr formaður Jafnvægisvogarráðs Eldjárn kaupir Tölvutek ásamt lykilstarfsmönnum Ráðin framkvæmdastjóri mannauðssviðs hjá Húsasmiðjunni Russ DeLeon eignast Höfða Lodge Selja sérbakaðar bollur í útivistarvöruverslun Fá veglegan styrk og innleiða Bara tala í alla framhaldsskóla Fjögur ráðin til Cirkus auglýsingastofu Sjá meira
Skiptastjóri Play kannar hvort Icelandair sé bótaskylt vegna ummæla starfsmanns Viðskipti innlent
Skiptastjóri Play kannar hvort Icelandair sé bótaskylt vegna ummæla starfsmanns Viðskipti innlent