Innlent

Átta ára fangelsi fyrir hrotta­leg brot gegn eigin­konu sinni

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Málið var til meðferðar hjá Héraðsdómi Reykjaness.
Málið var til meðferðar hjá Héraðsdómi Reykjaness. Vísir/Vilhelm

Karlmaður var dæmdur í átta ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í dag fyrir nauðgun, stórfellda líkamsárás og stórfellt brot í nánu sambandi yfir fjögurra ára tímabil. Hann þarf að greiða eiginkonu sinni fyrrverandi sjö milljónir króna í miskabætur.

Dómur var kveðinn upp í héraði í dag. Karl Ingi Vilbergsson saksóknari staðfestir niðurstöðuna í samtali við Vísi en dómurinn hefur ekki verið birtur á vefsíðu dómstólsins enn sem komið er.

Ákæran á hendur manninum var í þrettán liðum og var hann sakfelldur í þeim öllum. Hann var meðal annars sakaður um að hafa veist að eiginkonu sinni með ofbeldi, þar af eitt skipti á brúðkaupsnótt þeirra, og annað skipti yfir landsleik í handbolta. Þá var hann í nokkrum tilvikum sakaður um hafa nauðgað henni og í flestum tilvikum veist að henni svo harkalega að hún hlaut líkamlega áverka.

Einnig var hann sakaður um að hafa ítrekað reynt að stinga flöskum í leggöng og endaþarm konu sinnar, svívirt hana og haft samræði við hana gegn vilja.

Í einu tilviki var sagt frá því að maðurinn hefði slegið eiginkonu sína ítrekað, kastað innanstokksmun í höfuð hennar, lamið á kynfærasvæði hennar og traðkað á líkama hennar með þeim afleiðingum að hún hlaut lífshættulega áverka.

Karlmaðurinn var handtekinn þann 25. febrúar þegar tilkynnt var um heimilisofbeldi á sameiginlegu heimili hans og eiginkonu. Um var að ræða atvikið þar sem konan hlaut lífshættulega áverka.

Hann hefur síðan þá sætt gæsluvarðhaldi. Hann neitaði að stærstum hluta sök í skýrslutöku hjá lögreglu og sagði að konan hefði ráðist á sig og hann ýtt henni frá sér í sjálfsvörn. Hann væri fórnarlambið, ekki konan.

Dómurinn sakfelldi manninn í öllum ákæruliðum og dæmdi í átta ára fangelsi.


Tengdar fréttir

Grunaður um tilraun til manndráps í nánu sambandi

Lögreglan á Suðurnesjum hefur haft til rannsóknar ætlað stórfellt brot í nánu sambandi og ætlaða tilraun til manndráps frá 25. febrúar síðastliðnum. Karlmaður á fertugsaldri hefur verið í gæsluvarðhaldi frá því að málið kom upp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×