Úr bæjarstjórastól í forstjórastól OR Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 3. febrúar 2023 10:13 Sævar Frey Þráinsson verður nýr forstjóri OR. Vísir Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur hefur ráðið Sævar Frey Þráinsson, bæjarstjóra á Akranesi, í starf forstjóra fyrirtækisins og mun hann hefja störf þann 1. apríl næstkomandi.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Orkuveitunni. Sævar Freyr mun taka við af Bjarna Bjarnasyni sem verið hefur forstjóri undanfarin tólf ár. Í tilkynningu Orkuveitunnar segir að Sævar Freyr búi yfir mikilli reynslu og þekkingu eftir að hafa stýrt stórum fyrirtækjum og nú síðast sveitarfélagi. Sævar Freyr hefur meðal annars starfað sem forstjóri Símans, 365 miðla og nú síðast sem bæjarstjóri. „Þar sem Akraneskaupstaður er einn eigenda OR, hefur Sævar Freyr haft hlutverki að gegna gagnvart fyrirtækinu, sem bæjarstjóri. Hann hefur meðal annars stutt við framgang Carbfix og nýtt reynslu sína og bakgrunn í verkefnum tengdum Ljósleiðaranum,“ segir í tilkynningunni. Sævar er með cand.oecon gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands með áherslu á markaðsmál. Starfsreynsla Sævars telur hátt í þrjátíu ár og hefur hann verið stjórnandi nær allan þann tíma. Hann starfaði hjá Símanum í 18 ár og þar af sjö ár sem forstjóri. Hann var forstjóri 365 miðla í þrjú ár en frá árinu 2017 hefur hann gegnt stöðu bæjarstjóra í heimabæ sínum Akranesi. Í tilkynningu frá Akranesbæ er Sævari þakkað fyrir góð störf í þágu Akraness. Leitað verði að nýjum bæjarstjóra en í millitíðinni muni Steinar Adolfsson, sviðsstjóri fjármála- og þjónustusviðs, gegna starfinu eftir að Sævar lýkur störfum og þar til nýr bæjarstjóri tekur til starfa.
Vistaskipti Tímamót Akranes Orkumál Tengdar fréttir Forstjóri OR hyggst láta af störfum Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, hyggst láta af störfum frá og með 1. mars á næsta ári. Ný stjórn tekur senn við taumunum hjá Orkuveitunni. 26. september 2022 21:01 Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira
Forstjóri OR hyggst láta af störfum Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, hyggst láta af störfum frá og með 1. mars á næsta ári. Ný stjórn tekur senn við taumunum hjá Orkuveitunni. 26. september 2022 21:01