Innlent

Flókið að mynda ríkisstjórn miðað við kannanir

Heimir Már Pétursson skrifar
Nýjustu kannanir Maskínu og Gallup benda til þess að erfitt yrði að mynda ríkisstjórn ef kosið yrði til Alþingis um þessar mundir.
Nýjustu kannanir Maskínu og Gallup benda til þess að erfitt yrði að mynda ríkisstjórn ef kosið yrði til Alþingis um þessar mundir. Vísir/Vilhelm

Núverandi stjórnarflokkar næðu ekki að mynda meirihluta á Alþingi samkvæmt tveimur nýjustu könnunum Maskínu og Gallups. Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin mælast með álíka mikið fylgi í báðum könnunum.

Samkvæmt könnunum Maskínu sem birt var 28. desember og Gallup sem birt var 31. desember hefur Samfylkingin rúmlega tvöfaldað fylgi sitt frá kosningum 2021. Flokkurinn mælist nánast með sama fylgi og Sjálfstæðisflokkurinn.Grafík/Hjalti

Tilhneigingin á þróun fylgis stjórnmálaflokkanna í könnunum sem Maskína birti 28. desember og Gallup hinn 31. desember er mjög svipuð. Helsta breytingin frá kosningunum 2021 er að Samfylkingin tvöfaldar fylgi sitt í báðum könnunum. Fylgi hennar og Sjálfstæðisflokksins er nánast það sama, í hvorri könnun fyrir sig en öllu meira hjá Gallup en Maskínu. Framsóknarflokkurinn og Vinstri græn tapa mestu fylgi hjá báðum miðað við síðustu kosningar.

Að gefnum því að atkvæði flokka dreifist með svipuðum hætti milli kjördæma og í kosningunum 2021 má leika sér að skoða þingmannafjölda flokkanna miðað við þessar tvær kannanir og þar með möguleg stjórnarmynstur.

Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna hefur í tvígang myndað ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki. Stjórn þessara flokka næði ekki meirihluta í dag miðað við nýjustu kannanir.Vísir/Vilhelm

Stjórn Framsóknar, Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna væri fallinn samkvæmt báðum könnunum. Flokkarnir fengju sameiginlega 26 þingmenn samkvæmt könnun Maskínu og 27 samkvæmt könnun Gallups, en að lágmarki 32 þingmenn þarf til að mynda meirihluta.

Stjórnin sem reynt var að mynda eftir kosningar 2017 með Framsókn, Pírötum, Samfylkingu og Vinstri grænum næði hins vegar meirihluta samkvæmt báðum könnunum, með 33 til 34 þingmenn.

Flokkarnir þrír sem helst hafa átt samleið í stjórnarandstöðunni, Viðreisn, Píratar og Samfylking næðu ekki lágmarks meirihluta þingmanna. Ef Framsóknarflokkurinn gengi hins vegar til liðs við þessa þrjá flokka, næði hún meirihluta með 33 til 34 þingmenn eftir könnunum.

Kristrún Frostadóttir sem nýlega var kjörin formaður Samfylkingarinnar getur vel unað við það fylgi sem flokkur hennar mælist með í könnunum þessa dagana. Myndin var tekin í Kryddsíld stöðvar 2 á gamlársdag.Vísir/Hulda Margrét

Það myndi ekki duga Viðreisn, Pírötum og Samfylkingu að fá Vinstri græn til liðs við sig, sem hefðu 30 þingmenn á bakvið sig samkvæmt bæði könnun Maskínu og Gallup.

Ríkisstjórn Viðreisnar, Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar vantaði einn þingmann til myndunar meirihluta samkvæmt könnun Maskínu en næði rúmum meirihluta með 34 þingmenn samkvæmt könnun Gallups.

Ef Framsóknarflokkurinn fengi síðan tvo fylgismestu flokkana, Sjálfstæðisflokk og Samfylkingu með í stjórnarsamstarf hefði slík stjórn 34 til 38 þingmenn og þar með góðan meirihluta.


Tengdar fréttir

Samfylkingin orðin stærsti flokkur landsins samkvæmt könnun

Samfylkingin er stærsti flokkur landsins, með örlítið forskot á Sjálfstæðisflokkinn, samkvæmt nýrri könnun Maskínu fyrir fréttastofu. Stjórnmálafræðingur segir þetta mikil tíðindi - og allt Kristrúnu Frostadóttur að þakka.

Fylgi Sam­fylkingar rúm­lega tvö­faldast frá síðustu kosningum

Fylgi Samfylkingarinnar hefur rúmlega tvöfaldast frá þingkosningum á síðustu ári samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallúp. Fylgi flokksins mælist nú rúmlega 21 prósent samanborið við 9,9 prósent í þingkosningunum í september 2021 og fengi flokkurinn samkvæmt könnuninni fimmtán þingmenn kjörna.

Traust til Katrínar hrynur en Kristrún rýkur upp

Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar er sá stjórnmálaleiðtogi sem Íslendingar segjast treysta best, samkvæmt nýrri könnun sem Prósent gerði fyrir Fréttablaðið og birt var í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×