Hefur áhyggjur af því að dómstóll götunnar taki völdin í málinu Ólafur Björn Sverrisson skrifar 27. ágúst 2022 11:03 Olga Lísa Garðarsdóttir, skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurlands. Vísir/Magnús Hlynur Lögreglan rannsakar nú kynferðisbrot sem talið er hafa átt sér stað á salerni Fjölbrautaskóla Suðurlands. Meintur gerandi og brotaþoli eru báðir undir lögaldri. Skólastjóri skólans hefur áhyggjur af því að „dómstóll götunnar taki völdin í málinu“ og biðlar til nemenda að vanda sig í umræðunni. „
Því miður var framið kynferðisofbeldisbrot í skólanum í vikunni, það átti sér stað á milli tveggja ungmenna á einu af klósettum skólans,“ segir í pósti sem barst nemendum skólans í gær frá Olgu Lísu Garðarsdóttur, skólastjóra FSu. „Það er ekki búið að dæma í málinu og því er gerandi saklaus uns sekt er sönnuð,“ segir að auki í póstinum sem má lesa í heild sinni í lok greinarinnar. Í samtali við fréttastofu segir Olga það ekki rétt að hún hafi meiri áhyggjur af velferð meints geranda en þolanda í málinu. „Meintur gerandi er auðvitað ekki saklaus að öðru leyti en því að það þurfa dómstólar að dæma í þessu máli. Það er enginn saklaus og enginn sekur heldur fyrr en búið er að dæma í svona máli. Ég legg áherslu á að dómstóll götunnar getur ekki tekið völdin, hvort sem það er í þessu máli eða öðru,“ segir Olga og ætlast til þess að lögregla og dómstólar taki á málinu. Fjölbrautaskóli Suðurlands.Vísir/Egill Hún viðurkennir að hafa orðað hluta póstsins óheppilega, með fullyrðingu um að kynferðisbrot hafi verið framið, sem dæmi. Meintur gerandi var sendur í leyfi frá skólanum í tvo kennsludaga eftir að málið kom á borð skólastjórnar. Finnst þér þá skólinn hafa gert nóg í þessu tilfelli? „Það er í svona málum sem eru svona viðkvæm fara þau ekki fram opinberlega. Við erum bara að vinna í málinu, það tekur langan tíma en við erum í samskiptum við heimili umræddra aðila. Eflaust gerir skólinn aldrei nóg en hlutirnir geta ekki farið fram á samfélagsmiðlum.“ Hvernig er þá tekið á því ef nemandi í skólanum verður uppvís að notkun fíkniefna á klósetti skólans, sem dæmi? Er það tveggja daga straff? „Ef við höfum óyggjandi sannanir fyrir því að slíkt hafi átt sér stað þá er það náttúrulega líka lögreglumál. Síðan reynum við að vinna framhaldið í samræmi við landslög og stuðning lögreglunnar. Við vitum það að margir dagar geta liðið á milli þess að málið kemur á borð lögreglu og ákert er. Þegar ungmenni eiga í hlut verðum við að fara eftir fræðsluskyldu sem gildir til 18 ára aldurs. Okkur er óheimilt að vísa nemanda úr skóla nema óyggjandi sannanir liggi fyrir.“ Olga hefur einnig áhyggjur af því að „dómstóll götunnar“ taki völdin í málinu. „Þetta er ofbeldismál og slík mál snerta alla sem eiga í hlut, líka vini og vandamenn. Við höfum séð hingað til að dómstóll götunnar hefur tekið völdin og það hefur haft afleiðingar fyrir marga aðila og ég hef áhyggjur af því að við höldum áfram á þeirri braut. Ofbeldi á aldrei að líðast og við reynum að koma í veg fyrir það en það gengur ekki nógu vel eins og umræðan ber með sér og uppákomur að undanförnu. Þá er ég að tala um í samfélaginu almennt.“ Að hinn almenni borgari dæmi um hvað hafi gerst sé því ótækt að sögn Olgu. „Við auðvitað fordæmum allt ofbeldi, það gefur auga leið. Það versta í þessu öllu saman er að svona hlutir skuli eiga sér stað almennt,“ segir Olga að lokum. Póstur Olgu Lísu til nemenda. Fyrri hluti.skjáskot Póstur Olgu Lísu til nemenda. Síðari hluti.skjáskot Póstur Olgu vakti nokkuð hörð viðbrögð á Twitter eftir að hann var birtur þar.
Skóla - og menntamál Lögreglumál Framhaldsskólar Árborg Kynferðisofbeldi Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Sjö ára dómur Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Sjá meira