Erlent

Segist hafa átt eina erfiðustu viku lífs síns með Ezra Miller á Ís­landi

Eiður Þór Árnason skrifar
Ezra Miller spilar með hljómsveitnni Sons of an Illustrious Father í London árið 2018.
Ezra Miller spilar með hljómsveitnni Sons of an Illustrious Father í London árið 2018. Getty/Burak Cingi

Ung tónlistarkona sem kveðst hafa verið í sambandi með Ezra Miller á meðan hán dvaldi á Íslandi sakar Hollywood-stirnið um að hafa beitt sig sálrænu ofbeldi og skapað aðstæður sem minntu einna helst á sértrúarsöfnuð.

Greint hefur verið frá því að hið 29 ára Miller, sem er hvað þekktast fyrir að fara með hlutverk Flash í ofurhetjumyndum DC og Credence Barebone í Fantastic Beasts-kvikmyndaflokknum, hafi dvalið á Íslandi í um tvo mánuði árið 2020. Miller skilgreinir sig sem kvár og notar persónufornafnið hán.

Dvöl Miller vakti víða fjölmiðlaathygli þegar hán tók konu hálstaki á skemmtistaðnum Prikinu í Reykjavík og greint hefur verið frá því að Miller hafi komist í kast við lögin á Hawaii og í Vermont í Bandaríkjunum.

Lýsir einni skelfilegustu vikunni í lífi sínu

Auk þess að leigja Airbnb-íbúð í Kópavogi er Miller sagt hafa leigt hluta af Hótel Laugarbakka á Norðurlandi til þess að taka upp tónlist. Þar á hán að hafa kynnst áðurnefndri tónlistarkonu sem er hvergi nafngreind í umfjöllun Insider.

Þar er haft eftir henni að Miller hafi boðið henni, þá átján ára, að hitta sig á hótelinu. Fyrsta daginn hafi þau og aðrir tónlistarmenn kyrjað heiðin kvæði, reykt gras og setið saman í heitum potti. 

Eftir hafa tekið þátt í trekanti með Miller og annarri konu hafi hán svo boðið henni að dvelja með sér á hótelinu. Tónlistarkonan var þar í alls sex daga og segir Insider að þetta tímabil hafi verið „ein af skelfilegustu vikunum í lífi [sínu].“ Hún tekur fram að hún hafi verið á slæmum stað á þessum tíma og bæði háð áfengi og fíkniefnum.

Tónlistarkonan segir að Miller hafi sagt að hán elskaði hana eina stundina og svo kallað hana „andskotans ógeð“ þá næstu og lýsir hegðuninni sem sálrænu ofbeldi. Hún hafi þrisvar sinnum sofið hjá Miller sem hafi þá orðið „heltekinn af æxlunargetu hennar.“

Í tengslum við það hafi Miller tilbeðið „fullkomið“ leg hennar og oft talað við það, horft á það og faðmað, af því er fram kemur í umfjöllun Insider.

Passað við lýsingar á leiðtogum sértrúarsafnaðar

Tónlistarkonan segir að Miller hafi að þessu loknu reynt að sannfæra hana um að koma með sér til Hollywood en hún að endingu snúið aftur á heimili sitt í Reykjavík.

Fram kemur í grein Insider að eftir að hún hafi komið heim hafi áhyggjufullur meðleigjandi hennar afhent henni fræðsluefni um sértrúarsöfnuði en orðrómur var lengi á kreiki um að Miller starfrækti slíkan söfnuð í leiguíbúð sinni í Kópavogi.

Að sögn Insider las hún þar meðal annars að leiðtogar sértrúarsöfnuða lofuðu fólki oft andlegri vakningu, einangruðu fórnarlömb sín og gáfu þeim efnislega hluti til þess að reyna að stjórna þeim.

Hún segist hafa orðið mjög hrædd eftir lesturinn þar sem þetta „væri nákvæmlega það sem ég upplifði með Ezra.“

„Þetta voru einungis sex dagar en mér leið eins og þetta hafi verið mun, mun lengri tími.“


Tengdar fréttir

Ezra Miller ákært fyrir húsbrot og að stela áfengi

Leikarinn Ezra Miller var fyrr á þessu ári ákært fyrir húsbrot í Vermont í Bandaríkjunum. Málið er það nýjasta í röð atvika þar sem Miller hefur verið sakað um ofbeldi og óvenjulega hegðun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×