Lífið

Trúlofuðu sig á hótelherbergi í New York

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Sunna og Tommi trúlofuðu sig í New York á dögunum. 
Sunna og Tommi trúlofuðu sig í New York á dögunum.  Samsett mynd

„Átti vissulega að gerast á fancy rooftop-bar en ekkert er meira týpískt við en að það plan Tomma hafi ekki gengið upp. Sagan er líka betri svona!“ Segir Sunna Kristín Hilmarsdóttir í færslu sinni á Facebook þar sem hún tilkynnir trúlofunina. 

Trúlofunarplönin breyttust lítillega

Þau Sunna og Tómas Þór Þórðarson, ritstjóri enska boltans hjá Símanum, trúlofuðu sig á hótelherbergi í Tribeca, New York á dögunum en parið hefur verið saman í rúm fimm ár.

Bæði hafa þau starfað mikið í fjölmiðlum en Sunna vann um tíma sem blaðamaður á Vísi og Tómas sem íþróttafréttamaður hjá Stöð 2. 

Í færslu sinni á Facebook gerir Sunna góðlátlegt grín af því að upprunalegu trúlofunarplön unnustans hafi ekki gengið upp sem skyldi en það kryddi vissulega söguna og geri hana betri. 

Ætlar að sigrast á krabbameininu og halda gott partý

Í þættinum Ísland í dag tjáði Sunna sig nýlega um baráttu sína við ólæknandi krabbamein en hún komst að því að ekki væri allt með felldu þegar hún var í blóðprufum í byrjun glasafrjóvgunarferlis.

Sunna greindist með mergæxli og segir hún verkefni númer eitt, tvö og þrjú núna að láta sér batna og halda svo gott partý. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.