Verslun 10-11 í Leifsstöð selur bjór í flöskum Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 27. apríl 2022 15:23 Verslun 10-11 í Leifsstöð er með vínveitingaleyfi og selur bjórinn Stella Artois. Myndin er annars vegar af Stellu-bjór í hillu verslunarinnar í Leifsstöð og af verslun 10-11 við Austurstræti, þar sem bjórinn er ekki til sölu. Vísir Verslun 10-11 í komusalnum í Leifsstöð hefur fengið áfengissöluleyfi. Verslunin selur belgíska bjórinn Stella Artois en þó aðeins með 4,6 prósenta vínstyrk en ekki 5 prósenta eins og í vínbúðum landsins.
Í afgreiðsluborði verslunarinnar má finna leyfisbréf, sem gefið var út af Sýslumanninum á Suðurnesjum í janúar á þessu ári. Lesandi Vísis sendi inn mynd af rekstrarleyfinu og þó hún sé óskýr má þar lesa að veitingaleyfið gildir allan sólarhringinn og um er að ræða rekstrarleyfi veitingastofa og greiðasölu í flokki II. Gildistími leyfisins er ótímabundinn. Á þessari mynd, sem lesandi Vísis sendi inn, má sjá að bjórinn er með 4,6 prósenta vínstyrk og honum dreift í Bretlandi. Stella sem fæst í íslenskum vínbúðum er með 5 prósenta vínstyrk.Aðsend Sami lesandi sendi sömuleiðis inn mynd af bjórnum sem er til sölu í versluninni, sem er ekki fyrir innan öryggishliðin á flugvellinum heldur á svæði sem allir, gestir og gangandi, komast á. Á þeirri mynd má sjá að veslunin selur Stellu Artois, með 4,6 prósenta vínstyrk og af umbúðunum má dæma að um sé að ræða bjór sem er gerður til sölu í Bretlandi og er á þeim meðal annars vísað í tilmæli embættis landlæknis á Bretlandi um ábyrga drykkju. Stella sem seld er í íslenskum áfengisverslunum er með 5 prósenta vínstyrk. Jákvæðar umsagnir eftirlitsaðila ekki opinberar Aðeins þrjár 10-11 verslanir eru eftir á landinu: í Leifsstöð, á Laugarvegi við Hlemm og á Austurstræti. Hvorug verslananna í Reykjavík er með vínveitingaleyfi, þó þær selji veitingar, til dæmis pylsur og bakkelsi, eins og verslunin í Leifsstöð. Vinstra megin á myndinni má sjá leyfisbréf, útgefið af Sýslumanninum á Suðurnesjum, til veitingasölu í verslun 10-11 í Leifsstöð. Hægra megin má sjá skjáskot af leyfinu sem finna má á heimasíðu Sýslumanna.Vísir Orkan, sem rekur verslanir 10-11, hefur ekki svarað fyrirspurn fréttastofu þess efnis hvort til standi að sækja um vínveitingaleyfi fyrir hinar tvær verslanir 10-11 í Reykjavík. Þegar fréttmaður hafði samband við Sýslumanninn á Suðurnesjum sagði starfsmaður hans, sem sér um afgreiðslu leyfa sem þessara, að verslunin hafi uppfyllt öll skilyrði til veitingaleyfis. Þá hafi eftirlitsaðilar, líkt og sveitarfélagið og lögreglan, skilað inn góðum umsögnum um verslunina. Þær umsagnir eru ekki gerðar opinberar og að sögn hans ekki hægt að nálgast hjá sýslumannsembættinu. Ekki hefur borist svar frá sýslumannsembættinu við beiðni fréttastofu um að fá gögnin afhent. Komi ekki á óvart að matvöruverslun sé farin að selja áfengi Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda sem hefur verið ötull talsmaður þess að afnema einkarétt ríkisins á sölu áfengis, segir vínveintingaleyfi 10-11 í Leifsstöð til marks um hve gölluð áfengislöggjöfin hér á landi er. Ólafur Stephensen framkvæmdarstjóri Félags atvinnurekanda.Vísir/Vilhelm „Þessi svokallaði einkaréttur ríkisins á sölu áfengis er orðinn mjög götóttur. Það er engum vandkvæðum háð að kaupa sér áfengi eftir öllum mögulegum öðrum leiðum,“ segir Ólafur. „Það er hægt að heimsækja til dæmis lítil brugghús, þó þau hafi formlega ekki leyfi til að selja áfengi út úr húsi, og kaupa sér kippu. Það er hægt að taka með sér óopnaðan bjór til dæmis úr vegasjoppum sem eru með vínveitingaleyfi. Það er hægt að vera í smakkklúbbi og fá vínið sitt sent mánaðarlega eða vikurlega. Það er vín sem kemur ekki við í ríkinu og svo eru það þessar netverslanir.“ Hann segir ekki koma á óvart að matvöruverslun með veitingaleyfi sé farin að selja áfengi. „Það sýnir kannski fram á þörfina á því að endurskoða þetta fáránlega kerfi. Að alls konar leiðir fram hjá einkarétti ríkisins séu látnar viðgangast. Ætli lögreglan á Keflavíkurflugvelli komi ekki bara oft við í þessari búð án þess að gera við þetta nokkrar athugasemdir. En svo sé öðrum bannað að selja áfengi. Það er miklu nær að bara leyfa þetta almennt og yfirleitt en setja þá líka um það reglur og ramma,“ segir hann. „Alþingi verður að fara að taka þetta til skoðunar og áfengislöggjöfina almennt.“
Áfengi og tóbak Verslun Keflavíkurflugvöllur Tengdar fréttir Um helmingur landsmanna vill léttvín og bjór í búðir Um helmingur landsmanna vill að heimilt sé að selja léttvín og bjór í matvöruverslunum á Íslandi. Aðeins um 22 prósent vilja að sterkt áfengi verði til sölu í matvöruverslunum. 12. apríl 2022 13:38 Hefur ekki keypt áfengi af netverslun og skoðar hvort starfsemin standist lög Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra segir til skoðunar hjá ráðuneyti sínu hvort áfengissala netverslana sem skráðar eru erlendis en starfi að miklu leyti til hér á landi stangist á við lög. Félag atvinnurekanda hefur kallað eftir svörum um málið þar sem fjöldi fyrirtækja hefur áhuga á að hefja slíka sölu. Sjálf hefur Áslaug ekki keypt áfengi af slíkri netverslun. 14. september 2021 21:28 ÁTVR kærir Arnar til lögreglu og skattayfirvalda Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins (ÁTVR) hefur kært Arnar Sigurðsson, frönsku netverslunina Santewines SAS og innflutningsfyrirtækið Sante ehf. til lögreglu og Skattsins. Fyrirtækið er sakað um að standa ekki skil á innheimtum virðisaukaskatti. 16. júlí 2021 07:45 Mest lesið Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi Viðskipti innlent Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Viðskipti innlent Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Viðskipti innlent Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Viðskipti innlent Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Viðskipti innlent Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Viðskipti innlent „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Viðskipti innlent Dauðbrá þegar hún beit óvænt í glerbrot Neytendur Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Viðskipti innlent Jólin gengin í garð í verslunum Bónus Neytendur Fleiri fréttir Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð „Lán á bara að vera lán“ Komin með ný nöfn Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Svara ekki spurningum um mögulegar uppsagnir hjá NetApp Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Sjá meira
Um helmingur landsmanna vill léttvín og bjór í búðir Um helmingur landsmanna vill að heimilt sé að selja léttvín og bjór í matvöruverslunum á Íslandi. Aðeins um 22 prósent vilja að sterkt áfengi verði til sölu í matvöruverslunum. 12. apríl 2022 13:38
Hefur ekki keypt áfengi af netverslun og skoðar hvort starfsemin standist lög Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra segir til skoðunar hjá ráðuneyti sínu hvort áfengissala netverslana sem skráðar eru erlendis en starfi að miklu leyti til hér á landi stangist á við lög. Félag atvinnurekanda hefur kallað eftir svörum um málið þar sem fjöldi fyrirtækja hefur áhuga á að hefja slíka sölu. Sjálf hefur Áslaug ekki keypt áfengi af slíkri netverslun. 14. september 2021 21:28
ÁTVR kærir Arnar til lögreglu og skattayfirvalda Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins (ÁTVR) hefur kært Arnar Sigurðsson, frönsku netverslunina Santewines SAS og innflutningsfyrirtækið Sante ehf. til lögreglu og Skattsins. Fyrirtækið er sakað um að standa ekki skil á innheimtum virðisaukaskatti. 16. júlí 2021 07:45