Kristján lætur af störfum hjá Samherja Atli Ísleifsson skrifar 21. nóvember 2025 10:56 Kristján Vilhelmsson hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra útgerðarsviðs Samherja hf. um árabil. Samherji Kristján Vilhelmsson framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja hf. mun láta af störfum um næstu mánaðamót.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu en Kristján gerði stjórn félagsins grein fyrir þessari ákvörðun sinni fyrr í mánuðinum og tilkynnti hann sínu nánasta samstarfsfólki um væntanleg starfslok sín í dag. „Upphaf starfsferilsins má rekja til ársins 1983, þegar bræðurnir Kristján og Þorsteinn Vilhelmssynir og frændi þeirra Þorsteinn Már Baldvinsson keyptu nær allt hlutafé í Samherja hf. í Grindavík, sem hafði gert út togarann Guðstein GK 140 og fluttu þeir starfsemina norður til Akureyrar. Samherji er í dag eitt öflugasta sjávarútvegsfyrirtæki landsins með rekstur í útgerð, fiskeldi og sölu sjávarafurða. Starfsmenn eru um átta hundruð. Höfuðstöðvar félagsins hafa, frá því þeir frændur keyptu Samherja hf., verið á Akureyri og meginþungi starfseminnar á Eyjafjarðarsvæðinu,“ segir í tilkynningunni. Kristján og félög hans Sigtún og Landsbyggð hafa á síðustu árum verið virk á fasteignamarkaði og meðal annars byggt upp nýjan miðbæ á Selfoss, auk þess að kaupa ýmis hús, þar með talið höfuðstöðvar Landsvirkjunar við Háaleitisbraut í Reykjavík og Landsbankahúsið í Austurstræti. Fór fimm ára í sína fyrstu veiðiferð Fram kemur að Kristján hafi alla tíð haft einlægan áhuga á sjávarútvegi. „Faðir hans, Vilhelm Þorsteinsson var framkvæmdastjóri Útgerðarfélags Akureyringa í nærri þrjátíu ár og áður skipstjóri. Kristján var aðeins fimm ára gamall þegar hann fór með föður sínum í sína fyrstu veiðiferð og fyrsta launaseðilinn fékk hann í kringum tíu ára aldurinn fyrir að hnýta spyrðubönd fyrir ÚA. „Þetta er ekki bara átta til fimm vinna, heldur ástríða og í huganum sitja eftir góðar minningar. Vissulega hefur af og til gefið á bátinn eins og gengur og gerist en af því lærir maður. Allt hefur sinn tíma og þessi tilkynning ætti því í raun ekki að koma neinum á óvart,“ e haft eftir Kristjáni um væntanleg starfslok. Þá segir hann að stuðningur og skilningur eiginkonunnar, Kolbrúnar Ingólfsdóttur og fjölskyldunnar allrar hafi verið ómetanlegur. „Sjálfsagt hef ég á köflum verið svolítið erfiður í sambúðinni en Kolla mín hefur alltaf stutt mig vel.“
Akureyri Sjávarútvegur Vistaskipti Dalvíkurbyggð Mest lesið Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Sjá meira