Viðskipti innlent

Auka aftur réttindi sjóð­fé­laga og heimila líf­eyris­töku frá 60 ára aldri

Eiður Þór Árnason skrifar
Áunnin lífeyrisréttindi 65 ára og eldri munu haustið 2022 hafa hækkað samtals um 17,9% miðað við árslok 2020.
Áunnin lífeyrisréttindi 65 ára og eldri munu haustið 2022 hafa hækkað samtals um 17,9% miðað við árslok 2020. Vísir/Vilhelm

Lífeyrissjóður verzlunarmanna hefur aukið réttindi sjóðfélaga vegna sterkrar stöðu sjóðsins í annað sinn á innan við hálfu ári. Réttindi verða aukin til viðbótar þeirri 10% hækkun sem varð í nóvember 2021 og hækka lífeyrisgreiðslur um liðlega 7%. 

Einnig verður sveigjanleiki til töku lífeyris aukinn og upphafsaldur lífeyris heimilaður frá 60 ára aldri í stað 65 ára. Breytingarnar fela í sér að lágmarksréttur til makalífeyris sem áður var 36 mánuðir, verður nú þannig að við bætist hálfur makalífeyrir í 24 mánuði til viðbótar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá sjóðnum. Breytingar á áunnum réttindum sjóðfélaga sem gerðar voru í nóvember 2021 og ráðgerðar eru á árinu 2022 fela það í sér að áunnin lífeyrisréttindi 65 ára og eldri munu haustið 2022 hafa hækkað samtals um 17,9% miðað við árslok 2020.

Sömuleiðis verður örorkutrygging sjóðfélaga bætt og lífeyrir endurreiknaður oftar en áður hjá þeim sem hafa hafið lífeyristöku og eru enn í launaðri vinnu.

Eignir jukust um 188 milljarða

Að sögn stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna hefur sterk staða hans á síðasta ári gert honum mögulegt að auka réttindi verulega.

Eignir sjóðsins jukust um 188 milljarða króna á seinasta ári, þar af voru tekjur af fjárfestingum 174 milljarðar og raunávöxtun hans 11,5%. Heildareignir Lífeyrissjóðs verzlunarmanna voru 1.201 milljarður króna í lok síðasta árs og greiddu 48 þúsund sjóðfélaga iðgjöld til sjóðsins.

Að sögn sjóðsins hafa þessar breytingar í för með sér að skuldbinding sjóðsins gagnvart hverjum og einum sjóðfélaga þurfi að duga lengur en áður, það er fleiri mánuði, en heildarskuldbinding ævilangt verður þó óbreytt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×