Bandaríkjamenn fjölmennasti hópur ferðamanna í október Atli Ísleifsson skrifar 10. nóvember 2021 13:09 Brottfarir Íslendinga í síðasta mánuði voru tæplega 40 þúsund talsins en í sama mánuði í fyrra voru þær um tæplega fjögur þúsund. Vísir/Vilhelm Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru um 103 þúsund í nýliðnum októbermánuði samkvæmt talningu Ferðamálastofu og Isavia.
Í tilkynningu frá Ferðamálastofu segir að horfa þurfi til ársins 2015 til að sjá álíka fjölda brottfara erlendra farþega í októbermánuði. Bandaríkjamenn voru fjölmennastir eða tæplega þriðjungur. Frá áramótum hafa um 548 þúsund erlendir farþegar farið frá Íslandi og er um að ræða 17,3 prósenta fjölgun miðað við sama tímabil í fyrra þegar brottfarir erlendra farþega voru um 467 þúsund. Borið saman við 2019 er fækkunin hins vegar 68 prósent. „Langflestar brottfarir í október má rekja til Bandaríkjamanna eða tæplega þriðjung (31,7%). Bretar voru í öðru sæti en brottfarir þeirra voru um 10.200 talsins eða 9,9% af heild. Í þriðja sæti voru brottfarir Þjóðverja, um 9,1% af heild og í því fjórða Danir, um 5,3% af heild. Þar á eftir fylgdu brottfarir Pólverja (5,2% af heild), Spánverja (4,3% af heild), Ítala (4,3% af heild), Frakka (3,6% af heild), Hollendinga (3,6% af heild) og Kanadabúa (1,9% af heild). Samtals voru brottfarir tíu stærstu þjóðerna 79,5% af heild,“ segir í tilkynningunni. Brottfarir Íslendinga í síðasta mánuði voru tæplega 40 þúsund talsins en í sama mánuði í fyrra voru þær um tæplega fjögur þúsund. Brottfarir Íslendinga frá áramótum eru um 152 þúsund eða um fimmtungi fleiri en á sama tímabili í fyrra.
Ferðamennska á Íslandi Keflavíkurflugvöllur Mest lesið Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Kviku banka Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Viðskipti innlent Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Viðskipti innlent Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Viðskipti innlent Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Viðskipti innlent „Þetta er sögudrifinn söngleikur með rómantísku ívafi“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Sjá meira