Í skurðaðgerð vegna fylgikvilla hnífstungu árið 2018 Samúel Karl Ólason skrifar 15. júlí 2021 13:49 Jair Bolsonaro, forseti Brasilíu. AP/Eraldo Peres Jair Bolsonaro, forseti Brasilíu, þarf mögulega í neyðarskurðaðgerð vegna stíflu í þörmum. Hann var lagður inn á hersjúkrahús til aðhlynningar í fyrradag eftir að hafa fundið til í maganum og vera með hiksta í meira en tíu daga.
Í gærkvöldi var hann þó fluttur á gjörgæslu í sjúkrahúsi í Sao Paulo þar sem hann gengst rannsóknir og mögulega neyðarskurðaðgerð, samkvæmt frétt Reuters. Vitnað er í son Bolsonaro, sem heitir Flavio, en hann segir faðir sinn hafa farið í barkaþræðingu. Forsetaembættið segir veikindi forsetans, sem er 66 ára gamall, vera fylgikvilla frá því hann var stunginn árið 2018. Mynd af Bolsonaro var birt á Facebook í gær sem sýndi hann í sjúkrarúmi með prest sér við hlið. Þar eru veikindi hans einnig rakin til hnífaárásarinnar 2018. Við færsluna þakkar Bolsonaro fyrir þann stuðning sem hann hefur fengið og bænir fólks. Undanfarna daga og vikur hefur verið mikil umræða í Brasilíu um heilsufar forsetans. Í nýlegu viðtali virtist Bolsonaro eiga erfitt með að tala og hefur hann verið að kvarta undan óþægindum. Vinsældir forsetans hafa hrapað á undanförnum vikum og hefur Guardian eftir greinendum að fólk sé reitt yfir meðhöndlun hans á faraldri nýju kórónuveirunnar, sem veldur Covid-19. Í Brasilíu hafa minnst 537 þúsund manns dáið vegna Covid-19, svo vitað sé.
Brasilía Mest lesið Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Mikil spenna í veðurkortunum Innlent Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Innlent Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Innlent Fleiri fréttir Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Sjá meira