Innlent

Þjóðin ætti að fara í við­bragðs­stöðu eftir smit síðustu daga

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Kári Stefánsson segir smit síðustu daga vísbendingu um það að við verðum að vera undir það búin að grípa hratt til aðgerða ef stórt hópsmit kemur upp.
Kári Stefánsson segir smit síðustu daga vísbendingu um það að við verðum að vera undir það búin að grípa hratt til aðgerða ef stórt hópsmit kemur upp. Vísir

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segist áhyggjufullur vegna þeirra Covid-smita sem blossað hafa upp í samfélaginu síðustu daga. Hann segir fulla ástæðu til að vera á tánum núna.

„Það var tekin ákveðin meðvituð áhætta þegar hætt var að skima á landamærum í lok síðasta mánaðar og það var í raun og veru nauðsynlegt að taka hana. Við urðum að prófa hvort við gætum búið við eðlilegar kringumstæður í þessum samfélagi,“ segir Kári.

Hann vill ekki meina að sú tilraun hafi endilega mistekist. Hann segir þó að þau smit sem upp hafi komið síðustu daga bendi til þess að við verðum að vera undir það búin að grípa hratt til aðgerða ef stórt hópsmit kemur upp.

„Staðreyndin er sú að það fæst ekki nema 80 til 90 prósent vörn við bólusetningu og þeir sem eru fullbólusettir geta sýkst á nýjan leik án þess að lasnast og geta þar af leiðandi gengið með veiruna og breitt hana út án þess að vera sjálfir varir við að þeir hafi smitast.“

Það er þó ólíklegt að þeir sem eru fullbólusettir verði lasnir.

Kári hefur mestar áhyggjur af þeim hluta samfélagsins sem er óbólusettur. Þar á meðal eru börn undir sextán ára aldri, en skólar landsins koma saman á ný í næsta mánuði.

„Þannig það eru alls konar hlutir sem verður að hyggja að og ég held það sé nákvæmlega rétt hjá Þórólfi. Við verðum nú að fara undirbúa stofnanir samfélagsins sem kunna að þurfa bregðast við þessu, svo sem sjúkrahús, hjúkrunarheimili og skóla.“

Hér má sjá viðtalið við Kára í heild sinni.


Tengdar fréttir

Þórólfur áhyggjufullur og boðar til upplýsingafundar

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis hafa boðað til upplýsingafundar á morgun vegna varhugaverðrar stöðu eftir fjölgun Covid-19 smita utan sóttkvíar hér á landi síðustu daga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×