Hlutafjárútboð Solid Clouds hafið Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 28. júní 2021 10:45 Fólkið á bak við Solid Clouds. Vísir/Vilhelm Klukkan tíu hófst hlutafjárútboð í íslenska tölvuleikjafyrirtækinu Solid Clouds hf. Útboðið hefst örfáum dögum eftir að tilkynnt var um næsta tölvuleik úr smiðju fyrirtækisins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.
Um er að ræða þriðja útboðið hér á landi á rúmri viku en áður höfðu Íslandsbanki og flugfélagið Play ráðist í útboð. Þar segir að nýi leikurinn verði mun stærri í sniðum en síðasti leikur, Starborne: Sovereign Space, sem gefinn var út á síðasta ári. Vefsvæði vegna útboðsins hefur verið opnað á síðu Arion banka, sem er umsjónaraðili útboðsins. 12,5 krónur á hlut Boðnir verða til sölu að lágmarki 40 milljón hlutir í formi nýrra hlutabréfa í Solid Clouds en heimilt er að stækka grunnstærð útboðsins í allt að 58 milljónir hluta. Verð á hlut í útboðinu er 12,5 krónur á hlut. Í útboðinu bjóðast tvær áskriftarleiðir. Tilboð undir 15 milljónum króna falla undir áskriftarbók A, en hærri tilboð í áskriftarbók B. Lágmarkstilboð verður 100 þúsund krónur. Áætlað er að niðurstöður útboðsins verði tilkynntar þann 1. júlí næstkomandi. Afhendingardagur nýrra hluta og fyrsti viðskiptadagur á First North Iceland er áætlaður 12. júlí. Möguleiki á skattaafslætti fyrir einstaklinga Einstaklingar sem eru með skattalegt heimilisfesti á Íslandi og taka þátt í áskriftarbók A og fjárfesta fyrir að lágmarki 300 þúsund krónur uppfylla skilyrði um frádrátt frá tekjuskatts- og/eða fjármagnstekjuskattsstofni sínum fyrir allt að 75% af fjárfestingu sinni, að því gefnu að þeir eigi hlutabréfin í að lágmarki þrjú ár. Í tilkynningunni segir að Solid Clouds hf. hafi fengið staðfestingu frá Ríkisskattstjóra með bréfi dagsettu 31. maí 2021 að einstaklingar sem fjárfesta í hlutafjáraukningu félagsins eigi rétt á frádrætti frá tekjum sbr. 1. tl. B-liðar 1. mgr. 30. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, að uppfylltum þeim skilyrðum sem þar er kveðið á um. Frádráttur getur numið allt að 75% af fjárfestingu í hlutafjáraukningu fyrir einstaklingsfjárfesta sem eru með skattalegt heimilisfesti á Íslandi. 15% álag ef selt er innan þriggja ára Fjárfesting einstaklings í félagi þarf að nema að lágmarki 300 þúsund krónum. Hámarks frádráttarheimild vegna fjárfestingar er 15 milljónir króna hjá einstaklingi og hámarksfrádráttur 11.250.000 krónur (tvöfalt hjá hjónum). Einstaklingur þarf að eiga þau hlutabréf sem voru grundvöllur frádráttar í þrjú ár. Ef bréfin eru seld innan þriggja ára frá því fjárfestingin átti sér stað, verður upphaflegi frádrátturinn bakfærður með 15% álagi á söluári bréfanna. Ef frádrátturinn er hærri en tekjuskattsstofn skattaðila að viðbættum fjármagnstekjum á almanaksári færist það sem umfram er milli ára þar til hann er fullnýttur, en þó ekki lengur en næstu þrjú ár. Það sem ónýtt er af frádráttarheimildinni að þremur árum liðnum fellur niður.
Leikjavísir Kauphöllin Solid Clouds Tengdar fréttir Birtu kitlu úr nýjum Starborne-leik Solid Clouds Íslenski tölvuleikjaframleiðandinn Solid Clouds birti í dag nýja kitlu úr leiknum Starborne: Frontiers sem kemur út um mitt næsta ár. Leikurinn er hannaður fyrir snjallsíma en verður einnig spilanlegur á PC-tölvum. 24. júní 2021 23:32 Hlutafjárútboð Solid Clouds hefst í næstu viku Hlutafjárútboð íslenska tölvuleikjafyrirtækisins Solid Clouds hefst næsta mánudag klukkan 10 og mun standa fyrir til klukkan 16 miðvikudaginn 30. júní. Arion banki sér um útboðið en félagið verður skráð á First North markaðinn. 22. júní 2021 18:31 Þúsundþjalasmiður til Solid Clouds Tölvuleikjafyrirtækið Solid Clouds hefur ráðið þúsundþjalasmiðinn Eyvind Karlsson til starfa sem rithöfund og markaðssérfræðing. 15. júní 2021 13:55 Fjárfesta í Solid Clouds fyrir 270 milljónir Kjölur fjárfestingarfélag og aðrir tæknifjárfestar hafa fjárfest fyrir 270 milljonir króna í íslenska tölvuleikjaframleiðandanum Solid Clouds herkænskuleikinn Starborne. Auk þess fékk Solid Clouds vaxtarstyrk til tveggja ára frá Tækniþróunarsjóði. 8. janúar 2018 10:41 Mest lesið Lækkuðu vegna vaxtamálsins: „Lánakjör heimilanna hafa snarlega versnað“ Viðskipti innlent Skilja töskur eftir ef von er á kröftugum mótvindi Viðskipti innlent Seðlabankinn lækkar óvænt stýrivexti Viðskipti innlent Stefna Jóni Þorgrími vegna Rauða heftarans Viðskipti erlent Hækka árgjöld kreditkorta í fyrsta sinn í sjö ár Neytendur Svona virka verndaraðgerðir ESB vegna kísilmálms Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja lækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Taka minna mark á leiðsögn nefndarinnar og spá lækkunum Viðskipti innlent Indó ríður á vaðið Viðskipti innlent „Í fréttum lítur þetta allt saman nokkuð vel út, en...“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Bentu hvor á annan og hlutu ólík örlög Taka minna mark á leiðsögn nefndarinnar og spá lækkunum Fyrrverandi forseti Hæstaréttar fer yfir svör gervigreindarinnar Indó ríður á vaðið Lækkuðu vegna vaxtamálsins: „Lánakjör heimilanna hafa snarlega versnað“ „Aumingjalegt skref“ í rétta átt Fullt tilefni enda hafi aðstæður gjörbreyst á skömmum tíma Svona virka verndaraðgerðir ESB vegna kísilmálms Bein útsending: Rökstyðja lækkun stýrivaxta Seðlabankinn lækkar óvænt stýrivexti Skilja töskur eftir ef von er á kröftugum mótvindi Efnahagslegt tjón lítið ef nokkuð en öll prinsipp þverbrotin „ESB hefur nú sýnt klærnar og sitt rétta andlit“ Frá Sýn til Fastus Þrír forstöðumenn til starfa hjá Íslandsbanka Kortavelta á fljúgandi siglingu og vaxtalækkun ólíkleg „Það er verið að brjóta gegn grundvallaratriðum EES-samningsins“ „Varnarsigur“ að fá inn texta um samráð um áhrif tollanna Selur hjörð en ekki jörð Samþykktu verndartolla sem bitna á Íslandi og Noregi Orri einbeitir sér að bæjarmálunum og Kári tekur við Stjórnendur fyrirtækja svartsýnir Vigdís til Hringborðs hafs og eldis Hver er munurinn á séreign og samtryggingu? Óboðlegt að sitja undir íþyngjandi regluverki en njóta ekki ágóðans Ferðaþjónusturisar stefna á sameiningu Ráðinn nýr forstöðumaður hjá Origo Vonar að frestun fundarins marki stefnubreytingu „Loftslagsbanki“ veitir Veitum fimmtán milljarða króna lán Fríður nýr mannauðs- og gæðastjóri Lyfja og heilsu Sjá meira
Birtu kitlu úr nýjum Starborne-leik Solid Clouds Íslenski tölvuleikjaframleiðandinn Solid Clouds birti í dag nýja kitlu úr leiknum Starborne: Frontiers sem kemur út um mitt næsta ár. Leikurinn er hannaður fyrir snjallsíma en verður einnig spilanlegur á PC-tölvum. 24. júní 2021 23:32
Hlutafjárútboð Solid Clouds hefst í næstu viku Hlutafjárútboð íslenska tölvuleikjafyrirtækisins Solid Clouds hefst næsta mánudag klukkan 10 og mun standa fyrir til klukkan 16 miðvikudaginn 30. júní. Arion banki sér um útboðið en félagið verður skráð á First North markaðinn. 22. júní 2021 18:31
Þúsundþjalasmiður til Solid Clouds Tölvuleikjafyrirtækið Solid Clouds hefur ráðið þúsundþjalasmiðinn Eyvind Karlsson til starfa sem rithöfund og markaðssérfræðing. 15. júní 2021 13:55
Fjárfesta í Solid Clouds fyrir 270 milljónir Kjölur fjárfestingarfélag og aðrir tæknifjárfestar hafa fjárfest fyrir 270 milljonir króna í íslenska tölvuleikjaframleiðandanum Solid Clouds herkænskuleikinn Starborne. Auk þess fékk Solid Clouds vaxtarstyrk til tveggja ára frá Tækniþróunarsjóði. 8. janúar 2018 10:41