Viðskipti innlent

Lokið fjár­mögnun á sex­tán milljarða fram­taks­sjóði

Eiður Þór Árnason skrifar
F.v. Ari Ólafsson, Arnar Ragnarsson, Heiðar Ingi Ólafsson og Eiríkur Ársælsson sjá um stýringu nýja sjóðsins.
F.v. Ari Ólafsson, Arnar Ragnarsson, Heiðar Ingi Ólafsson og Eiríkur Ársælsson sjá um stýringu nýja sjóðsins. Stefnir

Stefnir hf. hefur lokið fjármögnun á 16 milljarða framtakssjóði undir heitinu SÍA IV. Mikil eftirspurn var meðal fjárfesta að sögn Stefnis og nam heildarfjárhæð áskrifta um 20 milljörðum króna.

Þetta kemur fram í tilkynningu en þar segir að SÍA IV muni fjárfesta í hlutafé óskráðra fyrirtækja með það að markmiði að taka þátt í verðmætasköpun gegnum uppbyggingu og umbreytingu í rekstri. Auk þess verði lögð áhersla á að fyrirtæki sem sjóðurinn fjárfesti í tileinki sér sjálfbærni og samfélagsábyrgð.

SÍA IV er fjórði sjóðurinn í röð SÍA framtakssjóða sem hófu starfsemi árið 2011 og hafa frá þeim tíma leitt fjárfestingar í íslensku atvinnulífi fyrir yfir 50 milljarða króna, að því er fram kemur í tilkynningu. Þá hafi sjóðirnir tekið þátt í uppbyggingu skráðs hlutabréfamarkaðar hér á landi, bæði með nýskráningum félaga í eigu sjóðanna í kauphöll og sölu til skráðra fyrirtækja.

Umbætur fyrirtækja kalli á aukið hlutafé

„Við teljum að á næstu árum verði góð tækifæri til fjárfestinga þar sem við erum að koma úr umhverfi og aðstæðum sem hafa markast af óvissu og biðstöðu. Fyrirtæki sjá tækifæri til að sækja fram og gera umbætur á sínum rekstri sem í mörgum tilvikum mun kalla á aukið hlutafé og breytingar á eignarhaldi. 

Þá er fjöldi fyrirtækja að færast af frumstigi og yfir á vaxtarstig og þarf á fjármagni og aðkomu nýrra fjárfesta að halda til að raungera áform sín. Með þeim stuðningi sem fjárfestar hafa sýnt okkur er SÍA IV vel í stakk búinn að taka virkan þátt í áframhaldandi uppbyggingu í íslensku atvinnulífi“, segir Arnar Ragnarsson, forstöðumaður sérhæfðra fjárfestinga hjá Stefni, í tilkynningu. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×