Afskrifaði yfir áttatíu milljóna skuldir krabbameinsveikra skjólstæðinga Vésteinn Örn Pétursson skrifar 5. janúar 2021 23:31 Omar Atiq rak krabbameinsmeðferðarstöð í Arkansas í hátt í 30 ár. Getty Krabbameinslæknir í Bandaríkjunum hefur afskrifað hátt í 650.000 dollara skuldir tvö hundruð sjúklinga sinna. Hann tók ákvörðunina eftir að hann komst að því hve margir þeirra ætti í greiðsluerfiðleikum vegna kórónuveirufaraldursins, sem komið hefur afar illa niður á Bandaríkjamönnum.
BBC fjallar um málið og segir frá því að læknirinn, Omar Atiq, hafi lokað krabbameinsmeðferðarstöð sinni í Arkansas-ríki á síðasta ári, eftir að hafa rekið hana í hátt í 30 ár. Um jólin hafi hann sent fjölda skjólstæðinga sinna bréf, þar sem hann tjáði þeim að hann hefði ákveðið að afskrifa skuldir þeirra við stöðina. „Með tímanum fór ég að átta mig á því að margir áttu í erfiðleikum með að borga. Þannig að ég og konan mín litum á þetta og skoðuðum að afskrifa allar skuldirnar. Við sáum að það var möguleiki og ákváðum bara að gera það,“ hefur BBC eftir Atiq. Atiq er upprunalega frá Pakistan. Hann stofnaði meðferðarstöðina sína í Pine Bluff í Arkansas árið 1991. Þar gátu skjólstæðingar meðal annars leitað geisla- og lyfjameðferðar. „Við hugsuðum að það væri enginn betri tími til þess að gera þetta en í miðjum faraldri, þar sem heimilum hefur verið rústað, ásamt lífi margra og lífsviðurværi, ásamt fleiru.“ Hér að neðan má sjá umfjöllun ABC um Atiq.
Bandaríkin Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Erlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Árásarmaðurinn sextán ára Erlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Fleiri fréttir Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Sjá meira