Innlent

Fjöldi sjálfsvíga svipaður og síðustu ár

Atli Ísleifsson skrifar
Embætti landlæknis hefur tekið saman bráðabirgðatölur um fjölda sjálfsvíga á fyrri hluta ársins.
Embætti landlæknis hefur tekið saman bráðabirgðatölur um fjölda sjálfsvíga á fyrri hluta ársins. Vísir/Vilhelm

Alls sviptu átján manns sig lífi á Íslandi á fyrri hluta ársins 2020, eða 4,9 á hverja 100 þúsund íbúa. Fjöldinn samræmist þeim sem verið hefur síðustu ár, en meðalfjöldi sjálfsvíga fyrstu sex mánuði áranna 2015 til 2019 var átján, eða 5,2 á hverja 100 þúsund íbúa. Ekki er heldur mikil breyting sé litið til tíu ára meðaltals áranna 2010 til 2019.

Frá þessu segir á vef Embættis landlæknis þar sem sjá má bráðabirgðatölur um sjálfsvíg á fyrstu sex mánuðum ársins.

Opinber tölfræði um sjálfsvíg byggir á dánarmeinaskrá embættisins. Þannig taki fjöldi sjálfsvíga til andláta þar sem undirliggjandi dánarorsök á dánarvottorði er skráð vísvitandi sjálfskaði. Geti ferlið við skráningu dánarmeina verið tímafrekt en nú hafi gögn borist fyrir fyrri hluta ársins og bráðabirgðatölur því verið gefnar út.

„Vegna fámennis þjóðarinnar þá geta litlar breytingar á fjölda valdið nokkrum sveiflum í dánartíðni. Talsvert miklar sveiflur þurfa að verða til þess að hægt sé að staðhæfa að um marktæka breytingu sé að ræða. Því er mikilvægt að túlka ekki nokkurra mánaða bráðabirgðatölur sem aukningu eða samdrátt á tíðni sjálfsvíga,“ segir í tilkynningunni.

Fólki með sjálfsvígshugsanir er minnt á Hjálparsíma Rauða krossins, 1717, og netspjallið. Þjálfaðir og reynslumiklir sjálfboðaliðar á öllum aldri svara þeim símtölum og spjöllum sem berast. Fullum trúnaði er heitið. Nánari upplýsingar hér. Síminn hjá Pieta-samtökunum er jafnframt opinn allan sólarhringinn og er 552-2218.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×