Innlent

150 í viðbót í sóttkví og þeirra á meðal forstjórinn

Kolbeinn Tumi Daðason og Sunna Sæmundsdóttir skrifa
Páll Matthíasson forstjóri Landspítalans og Anna Sigrún Baldursdóttir aðstoðarmaður forstjóra eru á meðal 150 starfsmanna Landspítalans sem eru komin í sóttkví. Til viðbótar eru 100 í úrvinnslusóttkví sem Páll reiknar með að fari fljótt fækkandi.
Páll Matthíasson forstjóri Landspítalans og Anna Sigrún Baldursdóttir aðstoðarmaður forstjóra eru á meðal 150 starfsmanna Landspítalans sem eru komin í sóttkví. Til viðbótar eru 100 í úrvinnslusóttkví sem Páll reiknar með að fari fljótt fækkandi. Vísir/Vilhelm

Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, er meðal 150 starfsmanna spítalans sem eru í sóttkví. Fjórtán starfsmenn eru smitaðir af Covid-19 og spítalinn á hættustigi.

„Ég er kominn í sóttkví frá því í gærkvöldi. Í rauninni telur hún frá föstudeginum síðasta. Ég fór í próf í gær sem var neikvæð. Það þarf að fylgja því eftir með öðru prófi seinna í vikunni, samkvæmt reglum.“

Um er að ræða fjórtán smit alls. Níu sem komu upp á skrifstofu Landspítalans en önnur dreifð hér og þar sem virðist ekki tengd.

„Til að fylgja öllum reglum er fjöldi í sóttkví, alls 150 manns. Svo 100 í viðbót í úrvinnslusóttkví en við gerum ráð fyrir að verði létt af mörgum í dag.“

Forstjórinn segir smit og sóttkví þó ekki skerða þjónustu.

„Margir geta unnið heima, sérstaklega fólk í skrifstofustörfum. Sem betur fer hefur ekki orðið klasasýking í tengslum við smit sem kom upp í skurðlækningaþjónustu. Þannig að við gátum skipulagt þar vaktir um helgina án þess að það truflaði þjónustu.“

Mjög mikilvægt sé að bregðast mjög hratt við.

„Við settum spítalann á hættustig í gær vegna þess að við teljum að smit starfsmanna geti ógnað þjónustu spítalans. Við setjum upp algjöra grímuskyldu á spítalanum, fólk þarf að viðhalda tveggja metra reglu, halda fjarfundi og vinna heima þar sem tök eru á,“ segir Páll.

„Spítalinn er á hættustigi og við erum að grípa til töluvert margra ráða til að tryggja að við höfum stjórn á þessum sýkingum og að ekki verði klasar,“ segir Páll. Hann nefnir sem dæmi að tekin hafi verið upp skömmtun á mat í matsölum í stað sjálfskömmtunar.

Páll segist sjálfur við hestaheilsu, sinni vinnu að heiman í gegnum síma og fjarfundabúnað.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×