Viðskipti innlent

Nýr sautján hæða hótelturn kallast á við Hallgrímskirkju

Kristján Már Unnarsson skrifar
Veröndin á þakinu verður einn besti útsýnisstaður Reykjavíkur. Þar verður RED Sky bar.
Veröndin á þakinu verður einn besti útsýnisstaður Reykjavíkur. Þar verður RED Sky bar. Arkitekt/Tony Kettle.

Sautján hæða hótelturn verður ein svipmesta bygging miðborgar Reykjavíkur en framkvæmdir eru hafnar á horni Skúlagötu og Vitastígs. Myndir af fyrirhugaðri byggingu voru sýndar í fréttum Stöðvar 2.

Þetta 203 herbergja hótel rís á vegum Radisson-hótelkeðjunnar og er áformað að það verði tilbúið á síðari hluta næsta árs. Það verður rekið undir RED-vörumerki Radisson, sem höfðar til yngri aldurshópa með líflegri þjónustu, frumlegri hönnun og fjölbreyttu litavali.

Hér má sjá afstöðu hótelturnsins miðað við Hallgrímskirkju.Arkitekt/Tony Kettle.

Skoski arkitektinn Tony Kettle segist við hönnun þess hafa sótt innblástur í sögu íslenskrar byggingarlistar og jarðfræði landsins en húsið kallast á við Hallgrímskirkju og rauðir og svartir litir eiga að vísa til eldvirkni og hraunrennslis.

„Við sem stöndum að byggingunni erum spennt fyrir verkefninu og stolt af hönnuninni,“ segir Tom Flanagan Karttunen, aðstoðarforstjóri hjá Radisson Hotel Group í Norður-Evrópu. 

Hann segir hönnun og skipulag tengja heimamenn og ferðamenn saman um göngustíg í gegnum hótelið, veitingastað á jarðhæð með götutorgi á horni Skúlagötu og Vitastígs ásamt Red Sky bar á efstu hæðinni og útsýnisverönd á þaki byggingarinnar. 

Hótelið rís á horni Skúlagötu og Vitastígs og verður opnað á síðari helmingi næsta árs.Arkitekt/Tony Kettle.

„Þetta verkefni er sennilega það flottasta sem ég hef gert,“ segir Kári Arngrímsson, byggingarstjóri hótelsins, og segir bygginguna sérstaka og glæsilega.

Hér má sjá frétt Stöðvar 2:






Fleiri fréttir

Sjá meira


×