Erlent

Kínverskur maður dó úr svarta dauða

Samúel Karl Ólason skrifar
Bræður sem borðuðu múrmelsdýr smituðust af svarta dauða fyrr í sumar. Ekki liggur fyrir hvernig maðurinn sem dó smitaðist.
Bræður sem borðuðu múrmelsdýr smituðust af svarta dauða fyrr í sumar. Ekki liggur fyrir hvernig maðurinn sem dó smitaðist. Vísir/Getty

Yfirvöld í Innri Mongólíu í Kína hafa girt þorp af eftir að maður dó þar úr svarta dauða. Sjúkdómi sem olli versta faraldri sögunnar. Maðurinn er sá þriðji sem smitast í Kína á þessu ári en sá fyrsti sem deyr. Maðurinn dó á sunnudaginn og svo var staðfest í gær að hann hefði dáið vegna svarta dauða.

Ekki liggur fyrir hvernig maðurinn smitaðist af veikinni en þorpið Suji Xincun hefur verið lokað af vegna málsins. Öll heimili þorpsins eru sótthreinsuð einu sinni á dag en hingað til hefur enginn annar íbúi greinst með svarta dauða. Alls hafa 26 verið sendir í sóttkví.

Þorpið Suji Xincun er staðsett í Baotou héraði. Fyrr í sumar greindist maður í Bayannur, héraði við hlið Baotou, með svarta dauða. Þar smituðust bræður eftir að þeir borðuðu múrmeldýr.

Á Vísindavefnum segir að baktería sem nefnist Yersinia pestis valdi svartadauða. Sjúkdómurinn er fyrst og fremst bundinn við nagdýr, til dæmis rottur, en hann getur borist í menn með flóm nagdýra og valdið lungna- og kýlapest.

Eins og tekið er fram í frétt CNN er talið að eitt til tvö þúsund manns smitist af svarta dauða á ári hverju. Líklegt er að sjúkdómurinn finnist á hverri heimsálfu og þá sérstaklega í vesturhluta Bandaríkjanna, Brasilíu, suðausturhluta Afríku, Indlandi, Kína og Mið-Austurlöndum.

Árið 2015 dóu til að mynda tvær manneskjur í Colorado í Bandaríkjunum. Árið áður greindust átta með svarta dauða í ríkinu

Who segir tiltölulega auðvelt að bregðast við sjúkdómnum með sýklalyfjum og hefðbundnum sóttvörnum.

Yfirvöld í Baotou hafa varað íbúa við því umgangast villt dýr og forðast veiðar. Þá er þeim ráðlagt að leita til læknis sýni þau einkenni sjúkdómsins eins og hita og/eða hósta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×