Erlent

Lækkar eigin laun um fimmtung

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Jacinda Ardern, forsætisráðherra Nýja-Sjálands, greindi frá launalækkun ráðamanna á upplýsingafundi vegna kórónuveirunnar í morgun. Hér er hún í opinberri heimsókn í Ástralíu.
Jacinda Ardern, forsætisráðherra Nýja-Sjálands, greindi frá launalækkun ráðamanna á upplýsingafundi vegna kórónuveirunnar í morgun. Hér er hún í opinberri heimsókn í Ástralíu. EPA/BIANCA DE MARCH

Laun ráðherra í ríkisstjórn Nýja-Sjálands verða lækkuð um 20 prósent. Hið sama mun eiga við um laun forstjóra 34 ríkisstofnanna. Að sögn forsætisráðherra landsins, Jacinda Ardern, er launalækkuninni ætlað að vera virðingarvottur til þeirra Nýsjálendinga sem eiga um sárt að binda vegna kórónuveirufaraldursins.

Það væri þannig mikilvægt að mati forsætisráðherrans að hæstlaunuðu embættismenn þjóðarinnar tækju af skarið og sýndu samstöðu með fólki í fremstu víglínu baráttunnar og þeim sem kunna að hafa misst vinnuna í faraldrinum. Launalækkunin tekur strax gildi og mun skerða laun ráðherranna næsta hálfa árið.

Mánaðarlaun forsætisráðherrans námu næstum 3,3 milljónum íslenskra króna á mánuði og munu þau því lækka um tæplega 660 þúsund krónur á mánuði. Ráðherrar ríkisstjórnarinnar eru 25 talsins og munu laun þeirra lækka að meðaltali um 385 þúsund krónur á mánuði. Sem fyrr segir verða laun forstjóra 34 ríkisstofnanna, þeirra á meðal landlæknis Nýja-Sjálands, jafnframt lækkuð og mun það spara nýsjálenska ríkinu rúmlega 154 milljónir króna næstu sex mánuði.

Leiðtogi stjórnarandstöðunnar þar í landi, Simon Bridges, hefur að sama skapi staðfest í samtali við þarlenda fjölmiðla að hann muni lækka laun sín.

Þegar hún tilkynnti um fyrirhugaða launalækkun sagði Ardern að ef einhvern tímann væri rétti tíminn til að minnka bilið milli Nýsjálendinga þá væri það í dag. „Ég fer fyrir framkvæmdavaldinu og hér getum við látið til skarar skríða. Þetta snýst um að sýna samstöðu þegar á móti blæs á Nýja-Sjálandi,“ sagði Ardern.

Útgöngubann hefur verið í gildi í landinu í þrjár vikur. Rúmlega 1300 Nýsjálendingar hafa verið greindir með veiruna, sem dregið hefur 9 til dauða. Öll voru þau eldra fólk með undirliggjandi sjúkdóma.

Rúmlega 1,5 milljón Nýsjálendinga hefur sótt um mótframlag frá stjórnvöldum vegna tekjumissis í faraldrinum. Dragist útgöngubannið á langinn gera dekkstu sviðsmyndir þarlenda fjármálaráðuneytisins ráð fyrir að næstum fjórðungur landsmanna, sem eru um fimm milljón talsins, gætu misst vinnuna.

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn áætlar að samdrátturinn á Nýja-Sjálandi muni nema um 7,2 prósentum í ár. Það yrði til marks um dýpstu kreppu í heiminum utan Evrópu og Venesúela.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×