Innlent

Þyrla og varðskip kölluð út vegna báts sem svaraði ekki kalli

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Þyrla LHG og varðskipið Týr svöruðu kallinu.
Þyrla LHG og varðskipið Týr svöruðu kallinu. Mynd/Landhelgisgæslan

Þyrla Landhelgisgæslunnar, áhöfnin á varðskipinu Tý og sjóbjörgunarsveitir á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar voru kallaðar út í hádeginu vegna báts sem datt úr sjálfvirkri tilkynningarskyldu og svaraði ekki kalli stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni. Þar segir að þegar merki frá bátnum hætti að berast stjórnstöð Landhelgisgæslunnar var þegar stað hafist handa við að ná sambandi við bátinn auk skipa í grenndinni en án árangurs.

Báturinn var staddur um þrjár sjómílur vestur af Stafnesi þegar síðast var vitað um hann. Einn var um borð. Þegar tilraunir til að komast í samband við bátinn báru engan árangur var ákveðið að kalla út þyrlu Landhelgisgæslunnar, áhöfnina á varðskipinu Tý auk sjóbjörgunarsveita frá Sandgerði.

Þyrlan tók á loft frá Reykjavík klukkan 12:20 en skömmu síðar náðist samband við línubátinn Bergvík, sem var í grenndinni, í gegnum farsíma. Þá kom í ljós að báturinn sem saknað var hafði orðið rafmagnslaus og gat skipverjinn ekki komið vélinni í gang. Um það leyti sem línubáturinn Bergvík kom að náðist að koma vél bátsins í gang.

Hann heldur nú til hafnar í fylgd Bergvíkur. Að auki siglir bátur frá björgunarsveitinni í Sandgerði á móti til að gæta fyllsta öryggis. Landhelgisgæslan leggur ríka áherslu á að sjófarendur sinni hlutvörslu á rás 16 sem getur reynst lífsnauðsynleg í neyð, að því er segir í tilkynningu gæslunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×