98 prósent eyjaskeggja greiddu atkvæði með sjálfstæði Atli Ísleifsson skrifar 11. desember 2019 07:15 Sjálfstæðissinnar á Bougainville fagna eftir að niðurstaða lá fyrir. AP
Íbúar á Bougainville, eyjaklasa sem hluti er af Papúa Nýju-Gíneu, greiddu með yfirgnæfandi meirihluta atkvæði með sjálfstæði í þjóðaratkvæðagreiðslu sem fram fór á síðustu vikum. Kjósendur höfðu un tvo kosti að velja – aukna sjálfstjórn eða fullt sjálfstæði. Af þeim 181 þúsund sem kusu, voru 98 prósent fylgjandi fullu sjálfstæði. Ríkisstjórn Papúa Nýju-Gíneu var samþykk framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslunnar, en niðurstaðan er engu að síður ekki bindandi. Er það nú undir þingi Papúa Nýju-Gíneu að ákveða næstu skref.Sjá einnig:Bougainville: Kosið um sjálfstæði kopareyjunnar í nóvemberBBC segir frá því að íbúar eyjanna séu um 300 þúsund og að um 207 þúsund hafi haft rétt til að kjósa. Verður Bougainville næsta fullvalda ríki heims?getty Það var Bertie Ahern, yfirmaður alþjóðlegrar nefndar um framkvæmd atkvæðagreiðslunnar og fyrrverandi forsætisráðherra Írlands, sem greindi frá niðurstöðum atkvæðagreiðslunnar í bænum Buka. Samkomulag um að halda þjóðaratkvæðagreiðslu náðist árið 2001 og var það liður í að binda enda á margra ára borgarastyrjöld sem kostaði hátt í 20 þúsund mannslíf. Nánar má lesa um eyjuna í þjóðaratkvæðagreiðsluna í frétt Vísis frá í september.
Papúa Nýja-Gínea Tengdar fréttir Bougainville: Kosið um sjálfstæði kopareyjunnar í nóvember Íbúar á eyjunni Bougainville munu kjósa um hvort eyjan skuli verða sjálfstæði í þjóðaratkvæðagreiðslu eftir rúma tvo mánuði. 15. september 2019 07:15 Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Fleiri fréttir Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Sjá meira
Bougainville: Kosið um sjálfstæði kopareyjunnar í nóvember Íbúar á eyjunni Bougainville munu kjósa um hvort eyjan skuli verða sjálfstæði í þjóðaratkvæðagreiðslu eftir rúma tvo mánuði. 15. september 2019 07:15