Mannskæð skotárás í kirkju í Búrkína Fasó Vésteinn Örn Pétursson skrifar 1. desember 2019 22:19 Hryðjuverkaárásum í Búrkína Fasó hefur fjölgað á síðustu árum. Þessi mynd var tekin eftir eina slíka, árið 2016. Vísir/Getty
Minnst 14 eru látin eftir skotárás í kirkju í þorpinu Hantoukoura í austurhluta Búrkína Fasó í dag. Í yfirlýsingu frá stjórnvöldum á svæðinu kemur fram að fjöldi manna sé særður eftir árásina. Ekki liggur fyrir hverjir standa að árásinni. Eins er ástæða hennar óljós. Hundruð manna hafa fallið í svipuðum árásum í landinu á síðustu árum. Flestar þeirra hafa verið framdar af öfgatrúuðum hryðjuverkasamtökum. Árásirnar hafa valdið mikilli spennu milli ólíkra þjóðfélags- og trúarhópa, sérstaklega við landamæri Búrkína Fasó við Malí. Í frétt breska ríkisútvarpsins af málinu er vitnað í heimildamann AFP-fréttastofunnar, sem segir að vopnaðir menn hafi komið inn í kirkjuna og byrjað að skjóta. Þeir hafi meðal annars skotið prest og börn sem í kirkjunni voru. Haft er eftir öðrum heimildamanni að mennirnir hafi flúið vettvang á vespum. Mannskæðar árásir öfgafullra íslamista hafa gerst æ tíðari í Búrkína Fasó síðan 2015, en ein afleiðing þess er að loka hefur þurft þúsundum skóla.
Búrkína Fasó Malí Mest lesið Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Innlent Mínútu fyrr á ferðinni væri Tómas allur Innlent Þau kvöddu á árinu 2024 Erlent Farþegaflugvél hrapaði í Kasakstan Erlent Fagna jólunum í Betlehem í skugga stríðs Innlent Men Tolla komið í leitirnar: „Sannkölluð jólasaga“ Innlent Egill Þór er látinn Innlent Þak fauk nánast af hlöðu Innlent Aðeins ein flugvél lent í Keflavík í dag Innlent Gott að geta sagt „þú ert hjartanlega velkominn“ Innlent Fleiri fréttir Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Alls kyns jól um allan heim Um helmingur farþega komst lífs af Rússar fagna vel heppnaðri árás á orkuinnviði Úkraínu Þau kvöddu á árinu 2024 Dyr Péturskirkjunnar standa opnar Farþegaflugvél hrapaði í Kasakstan Kristnir mótmæla í Sýrlandi vegna brennu á jólatré Samstarfsmaður Escobar frjáls ferða sinna Kraumar í fjarhægriflokknum sem árásarmaðurinn studdi Clinton lagður inn á sjúkrahús Lýsti yfir sakleysi sínu Grunur um alvarlega misþyrmingu barna Segir Grænland ekki falt Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Færeyingar fagna tvennum göngum Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Mótmælt á meðan minningarathöfn stóð yfir „Þetta var gjörsamlega hræðilegt“ Fimm látnir og tvö hundruð særðir Koma naumlega í veg fyrir stöðvun ríkisreksturs Fimmtugur geðlæknir ók bílnum Heyrðu í þyrlum og öskrum út um gluggann Bifreið ekið á hóp fólks á jólamarkaði Hefja aftur leit að MH370 rúmum tíu árum eftir hvarfið Vara við upprisu ISIS Sjá meira