Arsenal gerði 2-2 jafntefli við nýliða Norwich City í fyrsta leiknum undir stjórn Freddies Ljungberg. Svíinn tók við Arsenal eftir að Unai Emery var rekinn.
Pierre-Emerick Aubameyang skoraði bæði mörk Arsenal sem hefur ekki unnið í átta leikjum í röð.
Teemu Pukki kom Norwich yfir á 21. mínútu með sínu fyrsta marki í átta deildarleikjum.
Átta mínútum síðar jafnaði Aubameyang fyrir Arsenal með marki úr vítaspyrnu. Tim Krul varði reyndar fyrst frá Aubameyang en endurtaka þurfti spyrnuna því leikmaður Norwich var kominn inn í vítateig. Aubameyang skoraði svo úr seinni spyrnunni.
Þegar tvær mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma í fyrri hálfleik kom Todd Cantwell Norwich aftur yfir með góðu skoti.
Aubameyang jafnaði í 2-2 eftir hornspyrnu á 57. mínútu. Fleiri urðu mörkin ekki.
Arsenal er í 8. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 19 stig. Norwich er í nítjánda og næstneðsta sætinu með ellefu stig.
