Skoðun

Stút­fullir matar­stampar

Kolbrún Baldursdóttir skrifar
Mun meiri matarsóun er í íslenskum grunnskólum en í nágrannalöndunum samkvæmt rannsókn sem kynnt var á Menntaviku Háskóla Íslands nýlega. Þá er matur barnanna einsleitari hér en í nágrannalöndum okkar. Samt sem áður vill meirihlutinn í borgarstjórn draga úr dýraafurðum sem mun stuðla að enn einsleitari mat. Það eru ekki ný tíðindi að börn vilji ekki mikið af grófmeti sem dæmi. Sé börnum skammtað mikið af mat sem þau vilja ekki fer hann í ruslið.

Borgarfulltrúi Flokks fólksins hefur lagt fram tillögu þess efnis að skóla- og frístundaráð setjist niður með skólastjórnendum og matráðum skóla í því skyni að finna leiðir til að draga úr matarsóun.

Matarsóun er vandamál með marga snertifleti. Eftir því sem matarsóun er meiri þá felur það í sér að fjármunir borgarinnar eru illa nýttir við innkaup matvæla. Þá gefur mikil matarsóun það einnig til kynna að rekstur mötuneyta sé illa skipulagður og að betur megi fara. Matarsóun leiðir til aukins úrgangs og tilheyrandi kostnaðaraukningu við sorphirðu, endurvinnslu og urðun svo ekki sé minnst á kolefnisfótsporið.

Ýmis skref er hægt að taka til að stemma stigu við matarsóun í grunnskólum borgarinnar. Sterkar vísbendingar eru fyrir því að það sé hagstæðara að bjóða út rekstur mötuneyta grunnskólanna. Einnig skiptir máltíðaval miklu máli. Aukin fjölbreytni máltíða og aukin gæði eru til þess fallin að vinna gegn matarsóun. Mikilvægt er að hafa nemendur með í ráðum ef vinna á gegn matarsóun. Hægt er að setja af stað verkefni í skólum, eins og dæmi eru um, þar sem nemendur eru hvattir til að fleygja sem minnst af mat, fá að skammta sér sjálfir á diskinn og vigta síðan hversu mikið af mat þeir henda. Börn hafa almennt séð gaman af verkefnum af þessu tagi þar sem þau sjá mælanlegan ávinning af eigin framlagi. Það er okkar skylda að gefa börnum í Reykjavík tækifæri til að vinna í umhverfismálum í ríkari mæli. Þessi mál varða framtíð barnanna. Ef þau fá tækifæri til að koma með eigin tillögur og vinna að þeim er líklegt að þau beiti sér enn frekar fyrir málstaðnum. Barni sem þykir maturinn góður, fær að skammta sér sjálft, fær nægan tíma og næði til að borða er líklegt til að klára af disknum sínum.




Skoðun

Skoðun

21 blár

Jón Pétur Zimsen skrifar

Sjá meira


×