Ástralía vann leikinn 98-94 og batt því enda á 78 leikja sigurgöngu bandaríska liðsins en Bandaríkin töpuðu síðast körfuboltaleik á HM 2006.
Þetta var jafnframt fyrsti sigur Ástralíu á Bandaríkjunum í körfubolta en liðin hafa mæst 26 sinnum frá árinu 1964.
Patty Mills, bakvörður San Antonio Spurs, fór mikinn og gerði 30 stig fyrir Ástrala en bæði lið eru að undirbúa sig fyrir HM í Kína sem hefst um næstu helgi.
USA Basketball had won 78 straight games before today's loss.Körfuboltaáhugamenn í Bandaríkjunum hafa töluverðar áhyggjur af því að bandaríska liðið muni ekki verja heimsmeistaratitilinn á HM í Kína þar sem allar helstu stjörnur þjóðarinnar gefa ekki kost á sér í verkefnið.
Australia handed USA its first loss since the 2006 FIBA semifinals against Greece. pic.twitter.com/RxLp5XxSWc
— SportsCenter (@SportsCenter) August 24, 2019
Gregg Popovich mun þjálfa liðið og verður Kemba Walker skærasta stjarna liðsins í Kína á meðan leikmenn á borð við LeBron James, Steph Curry, Klay Thompson, James Harden, Russell Westbrook, Anthony Davis og fleiri góðir eru vestanhafs og undirbúa sig fyrir komandi leiktíð í NBA deildinni.
Fyrsti leikur Bandaríkjanna á HM er eftir slétta viku þar sem þeir mæta Tékklandi en áður en að því kemur munu þeir leika vináttuleik gegn Kanada.