Fylgi Sjálfstæðisflokksins ekki mælst minna síðan í hruninu Vésteinn Örn Pétursson skrifar 31. júlí 2019 19:45 Alþingishúsið. Vísir/Vilhelm
Fylgi Sjálfstæðisflokksins á Alþingi er 21,6 prósent samkvæmt Þjóðarpúlsi Gallup. Fylgi flokksins hefur ekki mælst jafn lítið og síðan í efnahagshruninu, eða í nóvember 2008. Mældist flokkurinn þá með 20,6 prósent.Sjá einnig: Gamlir foringjar pönkast í forystunni Þetta kemur fram í frétt RÚV. Þar segir einnig að fylgi Viðreisnar hafi aukist um tvö prósent frá síðustu mánaðamótum, og er það nú 12 prósent. Breytingar á fylgi annarra flokka eru ekki taldar marktækar. Tæp 14 prósent segjast styðja Samfylkinguna, eða um einu prósentustigi fleiri en þeir sem styðja Pírata. Miðflokkurinn nýtur um 12 prósenta fylgis, líkt og Vinstri græn. Þá segjast níu prósent myndu kjósa Framsóknarflokkinn. Ef miðað er við könnunina kæmi Flokkur fólksins til með að detta út af þingi í næstu kosningum, með fjögurra prósenta fylgi. Þar rétt á eftir fylgir Sósíalistaflokkurinn með þrjú prósent á bak við sig. Um 10 prósent segjast myndu skila auðu eða kjósa ekki. Þá sögðust 12 prósent aðspurðra ekki taka afstöðu eða ekki vilja gefa hana upp. Í frétt RÚV kemur einnig fram að rétt tæpur helmingur þeirra sem taka afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina, eða 48 prósent.
Alþingi Flokkur fólksins Framsóknarflokkurinn Miðflokkurinn Píratar Samfylkingin Sjálfstæðisflokkurinn Sósíalistaflokkurinn Viðreisn Vinstri græn Mest lesið Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Fleiri fréttir Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Sjá meira