Innlent

Breiðholtsskóli og Ártúnsskóli einnig til skoðunar vegna gruns um myglu

Kristín Ólafsdóttir og Sunna Sæmundsdóttir skrifa
Verið er að leita að hentugu húsnæði fyrir skólahald í Fossvogsskóla og á niðurstaða að liggja fyrir í dag.
Verið er að leita að hentugu húsnæði fyrir skólahald í Fossvogsskóla og á niðurstaða að liggja fyrir í dag. Vísir/vilhelm

Fossvogsskóli verður lokaður út þessa önn vegna myglu og skólahald verður í nokkrum byggingum á meðan viðgerðir standa yfir. Einhverjir árgangar verða mögulega í öðrum hverfum. Aðrir skólar eru í skoðun vegna gruns um myglu.



Greint var frá því í fréttum Stöðvar 2 í gær að Fossvogsskóla yrði lokað á miðvikudag vegna myglu. Tvær úttektir voru gerðar með mánaðarmillibili í skólanum en þær sýndu mismunandi niðurstöður. Sú fyrri sýndi að engin mygla væri í skólanum en móðir nemanda, sem taldi niðurstöðuna ranga, gekk á eftir því að önnur yrði gerð. Barnið hennar sem er í fyrsta bekk fór að finna fyrir einkennum um leið og skólahald hófst í haust.



Helgi Grímsson, forstöðumaður skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar, segir að seinni úttektin hafi verið mun umfangsmeiri og því sýnt ítarlegri niðurstöður.



„Fyrri skýrslan, hún varðaði eingöngu austasta hluta hússins og aðferðafræðin sem var beitt var ólík. En allavega voru vísbendingar eftir fyrri skýrsluna þannig að við töldum eðlilegt að kanna frekar málið.“



Skólanum verður lokað á miðvikudag og viðgerðir standa líklega yfir fram á haust. Verið er að leita að hentugu húsnæði fyrir skólahald á þessari önn og á niðurstaða að liggja fyrir í dag.



„Til dæmis að hafa fyrsta til þriðja bekk saman og síðan fimmta til sjöunda bekk saman. Það er það sem við erum með í huga og eðlilega horfum við til þess að þetta henti vel til náms og starfa. Og þetta er bæði í hverfinu og annars staðar af því að við leggjum svo mikla áherslu á að hafa stærri hóp saman.“



Fleiri skólar eru í skoðun vegna mögulegrar myglu og rakaskemmda.



„Allar vísbendingar, frá starfsfólki og börnum, munum við eðlilega í framhaldinu taka miklu skýrar fyrir. Við erum að vinna með rakavandamál í Breiðholtsskóla og það eru vísbendingar á nokkrum stöðum í Ártúnsskóla sem er verið að skoða. Ég er ekki með upplýsingar um annað í grunnskólum.“


Tengdar fréttir

Ráðist í stóra úttekt á myglu í Fossvogsskóla

Foreldri barns í Fossvogsskóla gagnrýnir túlkun á sýnum sem tekin voru vegna lélegra loftgæða í skólanum. Foreldri rekur veikindi barnsins til myglu. Skólastjórinn segir nýjar mælingar eiga að skera úr um hvort mygla sé í skólanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×