Handbolti

Nítjándi sigur Stefáns og félaga í nítján leikjum

Anton Ingi Leifsson skrifar
Stefán fagnar marki í búningi Pick.
Stefán fagnar marki í búningi Pick. vísir/getty
Stefán Rafn Sigurmannsson átti fínan leik er Pick Szeged vann stórsigur á Eger Eszterhazy, 40-21, er liðin mættust í ungversku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Staðan var jöfn eftir tíu mínútur 7-7 en þá stigu gestirnir í Pick á bensíngjöfina og voru sjö mörkum yfir í hálfleik, 21-14.

Yfirburðirnar voru svipaðir í síðari hálfleik þar sem Pick hélt tröllatökum á leiknum og unnu leikinn að endingu með nítján mörkum.

Stefán Rafn skoraði fimm mörk í liði Pick sem er með nítján sigra í fyrstu nítján leikjunum. Þeir eru tíu stigum á undan Veszprém sem eru í öðru sætinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×