Korta ræður tvo stjórnendur Helgi Vífill Júlíusson skrifar 6. febrúar 2019 06:45 Sigtryggur A. Árnason.
Korta hefur ráðið tvo stjórnendur. Sigtryggur A. Árnason tók við sem framkvæmdastjóri upplýsingatækni og Andrea R. Þorláksdóttir hefur verið ráðin sem forstöðumaður áhættustýringar, samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Sigtryggur hefur 20 ára reynslu úr hugbúnaðargeiranum meðal annars við að leiða hugbúnaðararkitektúr, tæknilega sýn fyrirtækja og teymi í fjölþjóðlegu umhverfi. Hann var áður framkvæmdastjóri yfir R&D og hugbúnaðararkitekt á heildarlausn Novomatic Lottery Solutions (NLS) þar sem hann leiddi innleiðingu nýrrar tækni og betrumbætur á hugbúnaði NLS. Áður tók hann þátt í að leiða þróun hugbúnaðar fyrir Landsbankann í Lúxemborg og OZ. Andrea hefur mikla reynslu af greiðslumiðlun eftir að hafa starfað hjá Borgun í yfir 17 ár. Eftir að hafa byrjað í þjónustu við viðskiptavini, vann Andrea í endurkröfudeild áður en hún flutti sig yfir í að þróa ferla fyrir erlend netviðskipti hjá Borgun. Síðustu átta ár hefur hún einblínt á áhættustýringu og eftirlit með seljendum, búið til og þróað ferla ásamt því að starfa að innleiðingu nýrra eftirlitskerfa. Jakob Már Ásmundsson, fyrrverandi forstjóri Straums fjárfestingarbanka, var ráðinn forstjóri færsluhirðingarfyrirtækisins í desember. Samhliða var hlutafé fyrirtækisins aukið um 1.050 milljónir króna. Forstjórinn lagði til um 80 milljónir króna. Kvika banki er stærsti einstaki hluthafi félagsins með yfir 50 prósenta eignarhlut.Andrea R. Þorláksdóttir.
Birtist í Fréttablaðinu Vistaskipti Mest lesið Bæta við sex nýjum Airbus-vélum Viðskipti innlent María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Viðskipti innlent Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Neytendur Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Viðskipti innlent Fyrsta apótek Víkur opnað Viðskipti innlent Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Viðskipti innlent Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Viðskipti erlent Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Viðskipti erlent Blöskraði dekkjaverð á Íslandi og sparaði sér á þriðja hundrað þúsund Viðskipti innlent Verja tuttugu milljónum króna á dag í loðnuleit í von um tugmilljarða vertíð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Sjá meira