Tíu bækur tilnefndar til Viðurkenningar Hagþenkis Atli Ísleifsson skrifar 23. janúar 2019 18:29 Hagþenkir hefur frá árinu 1986 veitt viðurkenningu fyrir fræðirit, námsgögn eða aðra miðlun fræðilegs efnis til almennings. Hagþenkir
Tíu rit hafa verið tilnefndar til Viðurkenningar Hagþenkis - félags höfunda fræðirita og kennslugagna - fyrir árið 2018, en tilnefningar voru gerðar opinberar á Reykjavíkurtorgi Borgarbókasafnsins í Grófinni síðdegis í dag. Í tilkynningu kemur fram að viðurkenningin verði veitt við hátíðlega athöfn í Þjóðarbókhlöðunni í byrjun mars og nema verðlaunin 1,25 milljónir króna. „Hagþenkir hefur frá árinu 1986 veitt viðurkenningu fyrir fræðirit, námsgögn eða aðra miðlun fræðilegs efnis til almennings. Árið 2006 var tekin upp sú nýbreytni að tilnefna tíu höfunda og bækur er til greina koma,“ segir í tilkynningunni. Viðurkenningarráðið skipa þau Auður Styrkársdóttir, Ásta Kristín Benediktsdóttir, Henry Alexander Henrysson og Svanhildur Kr. Sverrisdóttir.Að neðan má sjá lista yfir tilnefndar bækur:Alda Björk ValdimarsdóttirJane Austen og ferð lesandans. Skáldkonan í þremur kvennagreinum samtímans. Háskólaútgáfan. „Ítarleg og áhugaverð rannsókn á ímynd Jane Austen í samtímanum og áhrifum hennar á kvennamenningu, einkum ástarsögur, skvísusögur og sjálfshjálparbækur.“Axel KristinssonHnignun, hvaða hnignun? Goðsögnin um niðurlægingartímabilið í sögu Íslands. Sögufélag. „Ögrandi söguskoðun og eftirtektarverður frásagnarstíll höfundar mynda öfluga heild.“Árni Daníel JúlíussonAf hverju strái. Saga af byggð, grasi og bændum 1300–1700. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands og Háskólaútgáfan. „Vönduð sagnfræðirannsókn og frumleg framsetning býður lesandanum í spennandi tímaferðalag aftur til lítt þekktra alda Íslandssögunnar.“Bára Baldursdóttir og Þorgerður H. ÞorvaldsdóttirKrullað og klippt. Aldarsaga háriðna á Íslandi. Hið íslenska bókmenntafélag. „Faglega fléttað verk byggt á hárfínni heimildavinnu um sögu starfsgreinar þar sem sjónum er ekki síst beint að ólíkri kynjamenningu.“Hörður Kristinsson, Jón Baldur Hlíðberg og Þóra Ellen ÞórhallsdóttirFlóra Íslands. Blómplöntur og byrkningar. Vaka-Helgafell. „Einstakt bókverk þar sem framúrskarandi fræðimennska, væntumþykja fyrir viðfangsefninu og listræn útfærsla mun sameina kynslóðir í lestri.“Kristín Svava TómasdóttirStund klámsins. Klám á Íslandi á tímum kynlífsbyltingarinnar. Sögufélag. „Brautryðjandaverk um sögu kláms og kynverundar á Íslandi sem byggir á afhjúpandi rannsóknum á vandmeðförnu efni.“Magnús Þorkell BernharðssonMið-Austurlönd. Fortíð, nútíð og framtíð. Mál og menning. „Sérlega aðgengileg og fræðandi bók um nútímasögu Mið-Austurlanda, sögu- og menningarlegt samhengi nýliðinna viðburða og togstreitu milli heimshluta.“Ólafur KvaranEinar Jónsson myndhöggvari. Verk, táknheimur og menningarsögulegt samhengi. Hið íslenska bókmenntafélag. „Glæsileg og ríkulega myndskreytt bók um hugmyndafræði verka Einars og tengsl hans við alþjóðlegar listastefnur og íslenska menningu á fyrstu áratugum 20. aldar.“Rósa Rut ÞórisdóttirHvítabirnir á Íslandi. Bókaútgáfan Hólar. „Yfirgripsmikið safn frásagna um átök manna og hvítabjarna, unnið upp úr óvenjulegu gagnasafni sem nær allt frá landnámi til okkar daga; efni sem höfðar til allra aldurshópa.“Sverrir JakobssonKristur. Saga hugmyndar. Hið íslenska bókmenntafélag. „Fróðleg og sannfærandi framsetning á því hvernig hugmyndir manna um Krist þróuðust og breyttust gegnum aldirnar í meðförum þeirra sem á hann trúðu.“
Bókmenntir Menning Mest lesið Ástir og átök milli Laufeyjar og Hudsons Williams Tónlist Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York Lífið „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ Lífið Gat ekki haldið aftur af blótsyrðum við sigurinn Tónlist „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ Lífið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Lífið Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Lífið „Ég var mjög skrítinn krakki“ Lífið Bryndís Líf orðin móðir Lífið Höfði í stóru hlutverki í æsispennandi stiklu Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Þórdís Kolbrún og Dagur byrjuð með hlaðvarp saman Pétur Geir opnar nýja vinnustofu með einkasýningu Settu tærnar upp í loft og fengu knús Hatari hættir í Þjóðleikhúsinu og breytingar í Borgó „Ekki viss hvort ég sé að skrifa minningargrein eða kveðjubréf“ Sjötugur Haukur Holm kveður fréttamennskuna Raðvændiskaupandi dæmir ekki á Íslandi eftir allt saman Pétur Marteinn Páll Urbancic er látinn Edda tryllti gesti óvænt með Ladda Framtíð Mengis óráðin þó eignin sé til sölu Hjálmar H. Ragnarsson er látinn Fá rödd Guðna lánaða Hundrað þúsund bóka múrnum rústað á Bókamarkaðnum Fræjum framtíðar sáð í gamlar bókasafnsbækur Gjöfull trekantur Þessi hljóta tilnefningu til Myndlistarverðlauna Ástin blómstraði á sýningu Tolla Sjá meira