Hann bendir jafnframt á að nú í ár eru 50 ár síðan flugeldasala hófst til á Íslandi til að fjármagna björgunarsveitirnar. Flugeldasala á þannig hálfrar aldar afmæli en það eru blikur á lofti. Þær raddir gerast æ háværari að banna beri flugelda með öllu. Íslendingar, sem gjarnan líta til Svíþjóðar þegar svo ber undir ef menn vilja banna á hitt og þetta, geta nú vitnað til þess að þar er svo gott sem búið að banna flugeldana.
Sjónarmið sem snúa að umhverfisvernd, mengun og öðrum óþægindum og hættum sem fylgja flugeldum eru nefnd þessu til stuðnings. En víst er að þetta er og verður talsvert hitamál því fyrir mörgum er þetta ómissandi þáttur tilverunnar, hið árlega flugeldaæði sem þykir svo einstakt að fjölmargir ferðamenn koma til Íslands yfir áramót, meðal annars til verða vitni að þessu.
„Það syngur allt ágætt í okkur. En, þetta horfir þannig við okkur að öll þessi umræða um hugsanleg mengunaráhrif flugelda, við tökum hana alvarlega og tökum þátt í henni,“ segir Jón Svanberg. Hann er furðu rólegur þegar Sævar Helgi Bragason, stjörnufræðikennari og vísindamiðlari, er nefndur til sögunnar en hann er meðal þeirra sem hafa talað fyrir banni.
Jón Svanberg segir það einfaldlega svo að sala flugelda sé langstærsta fjáröflunarleið björgunarsveitanna. Tekjur af henni hlaupa á hundruðum milljóna.
Væru alveg til í að selja gallabuxur ef það gerði sama gagn
„Blákalt, þetta er hin hliðin á peningnum. Flugeldar fjármagna verkefni björgunarsveitanna að langstærstum hluta. Ef menn vilja breytingar; hömlur eða takmarkanir eða bann, svo langt sem það næði, þá þyrfti í raun að endurhugsa fjármögnun björgunarsveitanna og þau lögbundnu verkefi sem þær sinna.“Jón Svanberg segir það alls ekki vera svo að björgunarsveitarmenn séu einhverjir sérstakir varðhundar flugeldasölu.

Nýjasta dæmið er þetta hörmulega slys við Núpsvötn í gær þar sem allt viðbragð var sett af stað.
„Við verðum þá bara að finna leið til að fjármagna tilurð og verkefni björgunarsveitanna. Ef hægt er að leysa það með öðru en flugeldasölu, væri það ekkert verra. Flutningar á flugeldum er hættulegur í sjálfu sér. Stormur getur sett allt í vitleysu. Innflutningur á þessu er ekki einfaldur,“ segir Jón Svanberg og rekur ýmsar takmarkanir og annmarka sem eru á þessari starfsemi. Um er að ræða viðkvæman og hættulegan varning, svo mjög að hann þarf að fara um ákveðnar hafnir þar sem farmi er skipað til og frá.
Engir andstæðingar umhverfisverndarsjónarmiða
En, má ekki segja að það sé óbilgirni í málflutningi þeirra sem vilja banna?„Ég hef fullan skilning á þessum sjónarmiðum. Umræðan, það er erfitt að setja niður hælana og segja að hún sé í einhverju rugli. Hún á fullan rétt á sér. En við hvetjum til þess að hún sé tekin af skynsemi og með rökum. Við viljum forðast upphrópanir á hvorn veginn sem er.“

Grænir flugeldar ekki til
„Við þrætum ekki fyrir það. Ljóst að flugeldar menga. Gerðar voru miklar breytingar á flugeldunum og þeim efnum sem leyft var að nota við gerð þeirra á árunum 2010 eða 2011. Þá voru teknir út mikið af þessum mest mengandi efnum. Flugeldar menguðu minna í kjölfarið en það varð breyting á litasamsetningunni, þeir voru ekki eins skærir og áður. Þar voru stigin skref, en það er spurning þegar þú ert með efni, flugelda, púður og efni sem þarf bruna við þá leiðir það af sér mengun. Ég er ekki farinn að sjá „græna“ flugelda, í þeim skilningi að þeir séu umhverfisvænir. Það verður sennilega seint.“
Flugeldasalan burðarstykkið í fjármögnun björgunarsveitanna
Ef gluggað er í árskýrslu Landsbjargar má sjá að helstu tekjur koma frá styrktaraðilum svo sem Landsbankanum, Sjóvá, Sýn og Olís. Þá eru Íslandsspil, spilakassarnir umdeildu, ein af grunnstoðum í rekstri félagsins, en blikur á lofti vegna aukinnar spilunnar á netmiðlum. Því er spáð að afkoma þar muni versna. Neyðarkallinn er svo jafnan seldur fyrstu helgina í nóvember. Og svo er það flugeldasalan, sem gekk ágætlega: „ „Vegna veðurblíðu var aukin umfjöllun í fjölmiðlum um svifryksmengun og má vera ljóst að sú umræða eykst með árunum.“ Þá kemur fram að WOW Cyclothon skilaði Landsbjörgu í áheitum 20.655.210 krónum.Rekstrarreikningurinn lítur svona út:

„Félagið flytur inn flugeldana, lætur framleiða þá og svo eru það sveitirnar okkar sem selja þá. Þær eru sjálfstæðar rekstrarlega. Sölutölur flugelda birtast ekki í ársreikningi heildarsamtakanna. Til að átta sig á heildarmynd í því þyrfti að rýna alla ársreikninga allra eininga. Við erum heildsalinn,“ segir Jón Svanberg.
Fjármögnun björgunarsveitanna kemur öllum við
Eins og fram kemur í þessari frétt frá ári er flugeldasalan allt að níutíu prósent tekna hinna ýmsu björgunarsveita. Jón Svanberg segir að taka verði tillit til þess að her manna vinni að þessu, þegar sveitirnar fara af stað, en þar eru allir í sjálfboðavinnu, enginn launakostnaður inni í því.„Ágóðinn fer allur í uppbyggingu og verkefni björgunarsveitanna. Enginn þiggur laun hjá sveitunum sjálfum. Sjálfboðaliðastarf alls staðar úti í einingunum. Þetta eru 93 björgunarsveitir, ekki allar selja flugelda en langflestar gera það,“ segir Jón Svanberg.
Hann bendir á að fókusinn sé á fjármögnun verkefna björgunarsveitanna. Og leggur áherslu á að fólk sé sér meðvitað um að ef á að gera breytingar á fyrirkomulagi, það er sölu flugelda, þurfi að huga að þessum þáttum sem eru fráleitt einkamál björgunarsveitanna. Heldur liður í almannavörnum landsins alls.