Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Freyja Þórisdóttir skrifar 29. maí 2026 20:11 Vilhelm Már, forstjóri Eimskips, um borð í Dettifossi, öðru af tveimur stærstu skipum Eimskips. Vísir/Vilhelm Eimskip og Sjómannafélag Íslands (SÍ) hafa undirritað samkomulag um að aflýsa verkfalli háseta og bátsmanna á þremur skipum félagsins. Á mánudag, þann 25. maí, hófu hásetar og bátsmenn í Sjómannafélagi Íslands ótímabundið verkfall á stærstu skipum félagsins: Brúarfossi, Dettifossi og Selfossi.
Þá var fundað strax degi seinna í von um að leysa úr vandanum en án árangurs og segir í tilkynningu frá Eimskip að fréttirnar um samkomulagið verði vonandi til þess fallnar að eyða þeirri óvissu sem uppi hefur verið gagnvart starfsfólki og viðskiptavinum. Þar segir einnig að undirbúningur fyrir brottfarir skipa eigi að hefjast þegar í stað og að gert sé ráð fyrir að öll skip félagsins verði komin á áætlun í næstu viku. „Við erum á sama máli og Sjómannafélag Íslands og höfum mikla trú á sjómannastéttinni. Við höfum langvarandi reynslu af starfi þeirra, hæfni, dugnaði og áræðni. Það er okkur mikilvægt að halda því rótgróna sambandi áfram, vinna að framgangi stéttarinnar og lyfta henni upp,” segir Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri Eimskips í tilkynningunni. Bergur Þorkelsson, formaður Sjómannafélags Íslands, sagði í samtali við fréttastofu á miðvikudag að enn væri töluvert á milli samningsaðila. Þá höfðu deiluaðilar síðast fundað daginn áður, þriðjudaginn 26. maí, en þeir eru Eimskip, Samtök atvinnulífsins og Sjómannafélagið. Verkfallið tók til gámaskipanna Brúarfoss, Dettifoss og Selfoss og sagði Bergur ekki tekist á um laun í kjaradeilunni heldur mönnun skipanna og þá sérstaklega að Eimskip hefði sagt upp íslenskum skipverjum í fyrra og í staðinn leigt erlent skip með erlendri áhöfn.
Kjaramál Eimskip Skipaflutningar Tengdar fréttir Sjómenn hjá Eimskip boða verkföll Hásetar og bátsmenn á skipum Eimskips hafa boðað ótímabundið verkfall á mánudaginn í næstu viku, 25. maí, náist samningar ekki milli skipafélagsins og Sjómannafélag Íslands. Hafnarstarfsmenn munu svo að óbreyttu leggja niður störf degi síðar. Aðgerðirnar geta haft veruleg áhrif á afköst í Sundahöfn og siglingaráætlun Dettifoss, Brúarfoss og Selfoss. 17. maí 2026 19:31 Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Ótímabundnu verkfalli hafnaverkamanna í Sundahöfn hefur verið aflýst. Það er eftir að Samtök atvinnulífsins og Sjómannafélag Íslands gerðu samkomulag sem felur í sér að gera á hæfnigreiningu á hafnarstörfum. 21. maí 2026 21:00 Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Sjá meira
Sjómenn hjá Eimskip boða verkföll Hásetar og bátsmenn á skipum Eimskips hafa boðað ótímabundið verkfall á mánudaginn í næstu viku, 25. maí, náist samningar ekki milli skipafélagsins og Sjómannafélag Íslands. Hafnarstarfsmenn munu svo að óbreyttu leggja niður störf degi síðar. Aðgerðirnar geta haft veruleg áhrif á afköst í Sundahöfn og siglingaráætlun Dettifoss, Brúarfoss og Selfoss. 17. maí 2026 19:31
Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Ótímabundnu verkfalli hafnaverkamanna í Sundahöfn hefur verið aflýst. Það er eftir að Samtök atvinnulífsins og Sjómannafélag Íslands gerðu samkomulag sem felur í sér að gera á hæfnigreiningu á hafnarstörfum. 21. maí 2026 21:00