Flugeldar
1 2 3 4 5 6 … 7 ›
Vara við gróðureldum vegna flugelda Almannavarnanefnd Austurlands varar við því að mikil hætta sé á gróðureldum vegna flugelda. Snjóþekja sé víða lítil og gróður þurr en nokkuð stórir eldar kviknuðu í Neskaupstað, á Reyðarfirði, Breiðdalsvík og Djúpavogi kringum áramótin. Innlent 5.1.2026 11:28
Hlutfall fínasta svifryksins áberandi hátt á nýársnótt Síðustu klukkustundir ársins 2025 og fyrstu klukkustundir ársins 2026 var svifryksmengun mikil á höfuðborgarsvæðinu. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg kemur fram að áberandi hafi verið hversu hátt hlutfall fínasta svifryksins var af því svifryki sem mældist á gamlárskvöld og nýársnótt. Svifryk fór yfir sólarhringsheilsuverndarmörk PM10 í þremur af fimm mælistöðvum í Reykjavík. Innlent 2.1.2026 13:42
Telur nær öruggt að fleiri hundar muni týnast Metfjöldi hunda hefur verið tilkynntur týndur undanfarna daga vegna flugelda, 35 hundar hafa verið tilkynntir týndir frá 28. desember og níu frá því á miðnætti á gamlárskvöldi. Sjálfboðaliði Dýrfinnu segist telja nær öruggt að fleiri hundar muni týnast næstu daga á meðan flugeldum er skotið upp, eigendur þurfi að vera á varðbergi. Innlent 2.1.2026 13:30
Dæmi um að fólk hafi flúið upp í sveit Sala björgunarsveita á flugeldum gekk mjög vel þessi áramótin. Fólk hafi almennt farið varlega við að skjóta þeim upp, en nokkrir leituðu á bráðamóttöku með áverka á augum. Loftgæði eru aftur komin í lag eftir mengaða nýársnótt. Innlent 2.1.2026 13:07
Sumarbústaðaeigendur geti skotið upp flugeldum annars staðar Bóndi í Grímsnes- og Grafningshreppi hvetur sumarbústaðaeigendur til þess að skjóta upp flugeldum frekar heima hjá sér heldur en út í sumarbústað. Hann segir óvenju mikið hafa verið skotið upp í sveitinni á gamlársdag í ár með tilheyrandi eltingaleikjum við hrossin á bænum. Innlent 2.1.2026 09:57
Fimmtán leituðu á bráðamóttöku vegna flugeldaslysa Fimmtán manns leituðu á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi í Reykjavík vegna flugeldaslysa í gærkvöldi og í nótt. Þar af voru átta sem leituðu á spítalann vegna áverka á augum. Innlent 1.1.2026 11:07
Stunguárás og margar tilkynningar um flugeldaslys Lögregla á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast á nýársnótt þar sem mikið var tilkynnt um slys vegna flugelda, hávaða vegna samkvæma, ofurölvi einstaklinga og elda í gróðri eða húsum. Sömuleiðis var mikið um ólæti í miðbæ Reykjavíkur. Innlent 1.1.2026 06:51
Vara við hættu á sinubruna Slökkviliðsstjórar á Norðurlandi biðja fólk um að fara afar varlega með skotelda og opinn eld í dag vegna hættu á gróðureldum. Afar þurrt sé í veðri, gróður á Norðurlandi mjög þurr og því hætta á að eldur breiðist hratt út ef hann kemst í sinu. Innlent 31.12.2025 14:28
Öryggið á nefinu um áramótin Áramótin eru einstök á Íslandi og það þekkja flestir tilfinninguna sem því fylgir að halla höfðinu aftur til að horfa á himinn lýsast upp á áramótum. Fyrir foreldra fylgir þessari gleði þó líka aukin ábyrgð við að tryggja öryggi á oft yfirspenntum börnum og unglingum. Skoðun 31.12.2025 09:30
„Við bara svolítið sitjum uppi með þetta“ Víða er spáð hæglætisveðri á gamlárskvöld og mun lítið blása á suðvesturhorninu. Því má reikna með mikilli loftmengun vegna flugelda. Gert er ráð fyrir tveimur metrum á sekúndu eða minna á höfuðborgarsvæðinu um miðnætti á gamlárskvöld og á að lygna enn meira eftir það. Innlent 31.12.2025 00:11
Börn niður í leikskólaaldur um helmingur þeirra sem slasast Um helmingur þeirra sem slasast í flugeldaslysum eru börn allt niður í leikskólaaldur segir sérfræðingur í forvörnum. Góðir hanskar og flugeldagleraugu eru meðal öryggisbúnaðar sem nauðsynlegt er að hafa með þegar skjóta á upp annað kvöld. Innlent 30.12.2025 23:03
Landsbjörg innkallar pakka eftir að rakettur sprungu of snemma Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur hafið innköllun á Rakettupakka 2 og tekið hann úr sölu eftir að ábendingar bárust í kvöld um að sumar raketturnar í þeim væru gallaðar. Prófanir sýni að einhverjar þeirra springi of snemma. Viðskipti innlent 30.12.2025 21:35
Hvetja fólk til að plokka flugeldarusl á nýársdag Landvernd, Ungir umhverfissinnar og sjálfboðaliðasamtökin Seeds Ísland boða til átaks á nýársdag til að plokka flugeldarusl. Átakið ber nafnið glitter, no litter, sem mætti þýða sem glimmer en ekkert rusl og vísar til flugeldanna sem verða sprengdir upp um áramót. Innlent 30.12.2025 15:02
Hægt að gefa hundum róandi og lyf til að gleyma um áramót Hanna Arnórsdóttir, dýralæknir á Dýraspítalanum í Garðabæ, segir marga hunda hrædda við flugelda og hávaðann sem þeim fylgja og það geti haft mikil áhrif á þá í aðdraganda og á gamlárskvöldi. Hægt sé að gefa hundum töflur til að gleyma og til að róa þá. Innlent 30.12.2025 10:03
Hér verða áramótabrennur á gamlársdag 2025 Áramótin nálgast óðfluga og halda mörg sveitarfélög í þá hefð að hlaða í áramótabrennur. Vísir tók saman lista með helstu áramótabrennum landsins, listinn er ekki tæmandi og tekur fréttastofa fagnandi ábendingum um brennur sem ekki eru á lista. Innlent 29.12.2025 11:22
Ljósadýrð loftin gyllir Senn nálgast áramót og þá hefur skapast sú hefð að kveðja gamla árið með ljósadýrð og hvelli. Í hugum margra eru flugeldar ómissandi hluti af áramótunum en þeir eru ekki hættulausir og mikilvægt að fara að öllu með gát svo gleðin snúist ekki í angist þegar nýtt ár gengur í garð. Skoðun 27.12.2025 08:01
Staðsetning flugeldanna endurskoðuð vegna drengsins Staðsetning flugeldasýningar sem haldin var í Firði verður endurskoðuð eftir að ungur drengur fékk flugeldapúður í auga þegar stækkun verslunarmiðstöðvarinnar var fagnað í Hafnarfirði í gær. Framkvæmdastjóri segist harma atvikið en tekur fram að öllum nálægðarreglum hafi verið fylgt. Innlent 22.11.2025 12:18
Ungur drengur fékk púður úr flugeldi í augað Flugeldapúður skaust í auga á ungum dreng þegar flugeldasýning við opnun Fjarðarins í Hafnarfirði stóð yfir. Faðir drengsins segir að viðburðarhaldarar hefðu mátt hátta öryggismálum betur þar sem áhorfendur voru nokkuð nálægt sprengjusvæðinu. Heilsa drengsins virðist góð en hann lýsir sviða í auganu, að sögn föðurins. Innlent 21.11.2025 22:49
Rúða brotin og flugeld kastað inn Lítill eldur kviknaði í húsi á höfuðborgarsvæðinu í dag þegar rúða á hurð þar var brotin og flugeldi kastað inn. Óskað var eftir aðstoð lögreglu en búið var að slökkva eldinn þegar lögregluþjóna bar að garði. Innlent 6.10.2025 17:28
Skutu upp flugeldum í minningu Bryndísar Klöru Formlegri dagskrá Menningarnætur í ár er lokið, en henni lauk með veglegri flugeldasýningu til heiðurs minningu Bryndísar Klöru. Innlent 24.8.2025 00:10
„Það er voða hentugt að kenna okkur um þetta en við erum alsaklaus“ Hópur manna skaut upp flugeldatertum á bílaplani rétt hjá Ölstofunni í Hafnarfirði um tvöleytið í nótt. Íbúar beindu reiði sinni að barnum á hverfissíðu en eigandi Ölstofunnar segir flugeldana ekki tengjast barnum. Innlent 30.3.2025 14:00
Ekkert sérstakt eftirlit með afgangsflugeldum Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hefur ekki miklar áhyggjur af geymslu flugelda utan sölutíma þeirra og annast ekki eftirlit með afgangsflugeldum. Meiri hætta myndist í kringum sjálfan sölutímann, þegar fyrirtæki eiga það til að geyma þá ótryggum svæðum. Innlent 13.3.2025 12:14
Óseldir flugeldar geymdir í vel vöktuðu húsi Hátt í þrjú hundruð vörubrettum af óseldum flugeldum björgunarsveitanna hefur verið safnað saman í nærri í tvö þúsund fermetra rammgirtu húsi þar sem þeir bíða næstu áramóta. Jón Þór Víglundsson talsmaður Landsbjargar segir allt kapp lagt á að öryggi á svæðinu sé tryggt. Innlent 6.3.2025 22:30
Fólk skilji ekki eftir ósprungna flugelda: „Sprakk strax beint í andlitið á honum“ Alexandra Johansen ítrekar fyrir fólki að skilja ekki eftir ósprungnar flugelda og flugeldarusl á víðavangi. Sonur Alexöndru fann ósprungna tertu á fimmtudaginn í síðustu viku sem sprakk beint framan í hann. Hann er mikið slasaður í andlitinu en hefur einnig upplifað mikla andlega vanlíðan og áfall. Innlent 15.1.2025 08:59
Eldur í sjö ruslagámum á einum sólarhring Síðasti sólarhringur hefur verið erilsamur hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins en á tímabilinu hefur verið farið í átta útköll á slökkviliðsbílum sem flest voru vegna elds í ruslagámum. Innlent 7.1.2025 06:52
Eldur í „flugeldagámi“ við Klambratún Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu vinnur nú að því að slökkva í eldi sem kviknaði í ruslagámi við Klambratún í Reykjavík. Útkall barst um níuleytið í kvöld. Innlent 6.1.2025 21:19
Flugeldaruslið notað til að framleiða orku í Svíþjóð Sérstökum gámum hefur verið komið fyrir á höfuðborgarsvæðinu og eru íbúar hvattir til að skila notuðum flugeldum þangað. Ruslið er sent til úr landi og notað til að framleiða orku fyrir Svía. Innlent 2.1.2025 20:02
Mengun margfalt yfir heilsuverndarmörkum en varði skemur en óttast var Gildi svifryksmengunar mældis margfalt yfir heilsuverndarmörkum þegar mest var í nótt, en varði skemur en óttast hafði verið. Sérfræðingur veltir fyrir sér hvort flugeldum hafi verið skotið upp í minna magni en oft áður. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hvetur almenning til að hreinsa upp flugeldarusl og skila í viðeigandi grenndargáma. Innlent 1.1.2025 13:02
Álag vegna ölvunar og ofbeldis og tvö tilfelli vegna flugeldaslysa Mikið álag var á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi á nýársnótt, sem einkum má rekja til ölvunar og áverka vegna ofbeldis. Tveir leituðu á bráðamóttöku vegna flugeldaslysa í nótt sem er minna en oft áður. Innlent 1.1.2025 11:45
Ungur maður lést í flugeldaslysi í Danmörku Karlmaður á þrítugsaldri er látinn eftir að flugeldur sprakk nærri höfði hans í Óðinsvéum í Danmörku í nótt. Erlent 1.1.2025 08:25