Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Birgir Olgeirsson skrifar 29. maí 2026 12:02 Ástráður Haraldsson, ríkissáttasemjari. Vísir/Vilhelm Enn ber talsvert á milli Icelandair og flugmanna í kjaradeilu félaganna. Samninganefndir Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna komu saman til fundar hjá ríkissáttasemjara klukkan ellefu í morgun. Icelandair hefur aflýst fimm áætlunarferðum í vikunni vegna mönnunarvanda, þar af tveimur í dag.
Samninganefndir Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna hafa fundað ítrekað í vikunni en viðræðurnar hafa lítið þokast áfram. Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari hefur sagt að ekki hafi enn tekist að skapa nægan grundvöll til að þróa samtalið áfram. Deilan snýst nú einkum um vinnufyrirkomulag flugmanna. Þar er rætt um vinnuframlag, vaktir, frídaga og önnur atriði sem hafa bein áhrif á starf flugmanna annars vegar og framleiðni Icelandair hins vegar. Á sama tíma hefur mönnunarvandi þegar haft áhrif á flugáætlun félagsins. Icelandair hefur aflýst fimm áætlunarferðum í vikunni vegna skorts á áhöfnum. Ferðirnar sem hafa verið felldar niður eru: Þriðjudagur 26. maí – Toronto Fimmtudagur 28. maí – Vancouver Fimmtudagur 28. maí – Baltimore Föstudagur 29. maí – Stokkhólmur Föstudagur 29. maí – Seattle Icelandair hefur sagt að aflýsingarnar megi rekja til áhafnarskorts sem sé tilkominn vegna samstilltra aðgerða flugmanna. Flugmenn hafna því alfarið og segja ábyrgðina liggja hjá Icelandair. Að þeirra sögn hafi félagið treyst um of á að halda flugáætlun gangandi með því að kaupa frídaga af flugmönnum. Þegar flugmenn selji ekki frídaga í sama mæli og áður komi það niður á áætluninni. Icelandair segir hins vegar að sala frídaga sé rótgróinn hluti af starfsemi félagsins og heimil samkvæmt kjarasamningum flugmanna. Félagið hefur einnig bent á að flugmenn hafi síðast hafnað sölu frídaga með sambærilegum hætti árið 2014, þegar þeir voru í kjaradeilu við Icelandair. Ekki hefur verið boðað til nýs fundar í deilu Icelandair við flugvirkja eftir að síðasta fundi var frestað vegna veikinda. Sú deila er því einnig óleyst samhliða viðræðunum við flugmenn.
Icelandair Kjaramál Flug Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik Sjá meira