
O‘Neal hafði nýverið slitið trúlofun þeirra og segir lögreglan að Lopez hafi komið á sjúkrahúsið til að fá hring sinn til baka.
Rifrildi þeirra lauk með því að vinur hennar reyndi að grípa inn í en Lopez sýndi að hann var vopnaður. Vinurinn fór þá að kalla eftir hjálp en Lopez skaut O‘Neal þrisvar sinnum, stóð svo yfir henni og skaut hana þrisvar til viðbótar. Þegar lögregluþjóna bar að garði skaut Lopez á bíl þeirra og flúði inn á sjúkrahúsið þar sem vitni segja hann hafa skotið á fleiri aðila af handahófi og lögregluþjónana fyrir utan.
Þar féll lögregluþjónninn Samuel Jimenez, sem var 28 ára gamall, Dayna Less, 25, sem vann í apóteki sjúkrahússins.

Það sem liggur hins vegar fyrir er að á undanförnum fimm árum hafði Lopez keypt fjórar byssur og hafði hann einnig leyfi til að bera falið skotvopn á sér.
Blaðamaður Huffington Post, sem hefur lengi fjallað um skotárásir þar í landi, segir að frá 2015 til nóvember í fyrra hafi 46 skotárásir þar sem fjórir eða fleiri létu lífið átt sér stað. Rannsakendur segja að í 27 skipti af þeim 49 hafi árásarmaðurinn myrt maka eða fjölskyldumeðlim eða átt sér sögu um heimilisofbeldi.
Sem dæmi má nefna að Adam Lanza myrti móður sína áður en hann myrti 26 börn og kennara í Sandy Hook. Omar Matten beitti eiginkonur sínar ofbeldi áður en skaut á gesti skemmtistaðarins Pulse í Flórída. Devin Patrick Kelley var meðal annars rekinn úr flughernum fyrir heimilisofbeldi, var sakaður um kynferðisofbeldi en hann skaut 26 manns til bana í kirkju í Sutherland Springs í Texas. Á meðal fórnarlamba hans var amma eiginkonu hans en fjölskylda hennar sótti kirkjuna reglulega. James Hodgkinson, sem skaut á þingmenn Repúblikanaflokksins þar sem þeir voru á hafnaboltaæfingu, var eitt sinn handtekinn fyrir að slá og kyrkja fósturdóttur sína.
Svona mætti lengi telja.
Ekkert hægt að segja til um orsakasamhengi
Bent er á í umfjöllun Time að erfitt sé að segja til um orsakasamhengi á milli heimilisofbeldis og skotárása. Það að menn sem geri skotárásir séu líklegir til að eiga sér sögu um heimilisofbeldi tákni ekki að allir ofbeldismenn fremji skotárásir.Prófessorinn Susan B. Sorenson, sem hefur verið að skoða þessi mál, segir það eina sem hægt sé að alhæfa um aðila sem fremji mannskæðar skotárásir, sé að þeir hafi allir haft aðgang að skotvopnum og jafnvel fjölmörgum.
Repúblikanar og Demókratar hafa í gegnum tíðina verið sammála um að reyna að koma í veg fyrir að aðilar sem dæmir eru fyrir heimilisofbeldi hafi aðgang að skotvopnum. Það hefur samt reynst erfitt þar sem fjölmargir slíkir aðilar hafa fallið á milli þilja þegar komi að bakgrunnsskoðunum við byssukaup og þá séu ekki mörg ríki Bandaríkjanna sem geri þeim aðilum að skila byssum sínum eftir að þeir hljóta dóm.
Rannsakendur segja þó að marktækur munur sé á tíðni morða þar sem makar eiga í hlut, eftir því hvort ríki taki byssur af dæmdum ofbeldismönnum eða ekki.