Nærri því 400 þúsund rohingjamúslimar hafa flúið Samúel Karl Ólason skrifar 15. september 2017 15:30 Af þeim tæplega 400 þúsund sem flúið hafa til Bangladess er talið að um 240 þúsund séu börn. Vísir/AFP
Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna áætlar að 389 þúsund Rohingjamúslimar hafi flúið frá Búrma síðan átök hófust í Rakhine-héraði þann 25. ágúst. Þar á meðal séu um 240 þúsund börn og fólkið þurfi nauðsynlega á aðstoð að halda. Á vef stofnunarinnar segir að yfirvöld í Bangladess og hjálparsamtök eigi erfitt með að aðstoða þennan fjölda. Þörf sé á skýlum, matvælum og lyfjum og læknaaðstoð. Sumir sem hafa flúið yfir landamærin sjá þorp sín brenna við sjóndeildarhringinn en herinn og vopnaðir hópar búddista hafa verið sakaðir um að brenna heimili Rohingjafólks.Hundreds of thousands of Rohingya Muslims from Myanmar are fleeing towards Bangladesh. Here are five things about the Rohingya. pic.twitter.com/NVr5dDpXZi— AFP news agency (@AFP) September 15, 2017 Rohingjafólkið hefur búið í Búrma um langt skeið og hefur verið lýst sem þeim minnihlutahópi í heiminum sem býr við mestar ofsóknir. Talið er að þeir séu um 1,1 milljón og búa langflestir þeirra í Rakhine héraði í vesturhluta Búrma en stjórnvöld þar hafa ekki viðurkennt þau sem borgara. Rohingjafólkið er íslamstrúar en meirihluti íbúa Búrma eru búddistar. Yfirvöld Búrma hafa verið sökuð um þjóðernishreinsanir og að reyna að reka Rohingjafólkið frá landinu. Þau hefur herinn verið sakaður um að koma fyrir jarðsprengjum við landamæri Búrma og Bangladess.Azizul Hoque died shortly after this video was filmed. His body was torn apart by a landmine as he and his Rohingya family fled Myanmar pic.twitter.com/pmjtyZ5G72— AFP news agency (@AFP) September 14, 2017 Átökin hófust þegar uppreisnarmenn sem tilheyra Rohingjafólkinu gerðu samræmdar árásir á lögreglustöðvar. Herinn hefur verið sakaður um harkaleg viðbrögð. Fólk sem hefur flúið til Bangladess segir að hermenn hafi skotið á þau og hefur framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, Antonio Guterres, segir ofbeldið vera þjóðernishreinsanir. Þá segjast samtökin Amnesty International búa yfir sönnunum um að um sé að ræða skipulagða herferð sem gengur út á að brenna þorp Rohingjafólks.AP fréttaveitan hefur eftir yfirvöldum í Búrma að hundruð hafi dáið í aðgerðum hersins og þar af tilheyri flestir Rohingjafólkinu. Þar að auki segja yfirvöld að 176 af 471 þorpi Rohingjafólksins hafi verið yfirgefin.
Flóttamenn Tengdar fréttir Suu Kyi segir stjórn Búrma reyna að verja alla þegna sína Kröfur hafa verið gerðar um að Aung San Suu Kyi verði svipt friðarverðlaunum Nóbels vegna aðgerðaleysi hennar gagnvart ofsóknum á hendur rohingja. 7. september 2017 21:05 Frá friðarverðlaunum til þjóðernishreinsana Aung San Suu Kyi, leiðtogi Mjanmar, er sögð þegja á meðan almennir borgarar drepa Rohingja-múslima án dóms og laga. Suu Kyi er handhafi friðarverðlauna Nóbels og skora aðrir friðarverðlaunahafar á hana að binda enda á ofsóknirnar. 13. september 2017 06:00 Segir framgönguna skólabókardæmi um þjóðernishreinsun Yfirmaður hjá Sameinuðu þjóðunum segir aðgerðir stjórnvalda í Mjanmar gegn Rohingya-múslimum "skólabókardæmi um þjóðernishreinsun.“ 11. september 2017 08:38 Rohingjar létu lífið á jarðsprengjusvæði Þúsundir Roingja-múslima flýja nú Rakhine-hérað í Mjanmar og yfir til Bangladess. 12. september 2017 08:22 Skrópar á allsherjarþingi en óttast ekki að vera gagnrýnd Aung San Suu Kyi, leiðtogi Mjanmar og friðarverðlaunahafi, sætir gagnrýni fyrir að fordæma ekki ofbeldi í garð Rohingja í landi sínu. 14. september 2017 07:00 Mest lesið Féll í Jökulsárlón Innlent Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur Innlent Uppfylltu öll skilyrði nema aldurstakmarkið Innlent Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Innlent „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent Leita enn að geranda í stungumáli Innlent Dæmi um leikskóla þar sem enginn starfsmaður talar íslensku Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Fleiri fréttir Japanir halda í kjörklefana Bandaríkjamenn vilji að stríðinu verði lokið í júní Birtu ekki baulið Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Íslendingarnir næstum lent í stórslysi vegna alvarlegra mistaka Höfnuðu kröfum Bandaríkjamanna Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Neytandi njósnakláms varð fórnarlamb Tugir látnir eftir sprengjuárás í Islamabad Flúði fílahjörð í kjaftinn á krókódíl Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Hik komið á lýtalækna í kjölfar bótadóms vegna kynleiðréttingar Rússar í vandræðum með netið í Úkraínu Umferðin í klessu vegna mikillar snjókomu í Danmörku Hátt settur leyniþjónustumaður skotinn og særður í Moskvu Fór í flugtak af akbraut og hafnaði úti á grasi Bandaríkjamenn og Rússar taka upp formleg samskipti á ný Hvetur til allsherjarverkfalls ef Trump reynir að stela þingkosningunum Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Segir 55 þúsund hermenn fallna en margra sé saknað Vara við uppgangi Íslamska ríkisins Sjónvarpskona biður mannræningja um sönnun þess að móðir hennar lifi enn Demókratar unnu orrustu í kjördæmastríðinu Vildi ekki hitta miðvinstriþingmenn í heimsókn til Washington Sendi Trump tóninn vegna Taívan Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Segir brýnt að semja um áframhaldandi fækkun kjarnavopna Starmer gagnrýndur af samflokksmönnum sínum Segist sjá eftir hverri mínútu með Epstein Sjá meira
Suu Kyi segir stjórn Búrma reyna að verja alla þegna sína Kröfur hafa verið gerðar um að Aung San Suu Kyi verði svipt friðarverðlaunum Nóbels vegna aðgerðaleysi hennar gagnvart ofsóknum á hendur rohingja. 7. september 2017 21:05
Frá friðarverðlaunum til þjóðernishreinsana Aung San Suu Kyi, leiðtogi Mjanmar, er sögð þegja á meðan almennir borgarar drepa Rohingja-múslima án dóms og laga. Suu Kyi er handhafi friðarverðlauna Nóbels og skora aðrir friðarverðlaunahafar á hana að binda enda á ofsóknirnar. 13. september 2017 06:00
Segir framgönguna skólabókardæmi um þjóðernishreinsun Yfirmaður hjá Sameinuðu þjóðunum segir aðgerðir stjórnvalda í Mjanmar gegn Rohingya-múslimum "skólabókardæmi um þjóðernishreinsun.“ 11. september 2017 08:38
Rohingjar létu lífið á jarðsprengjusvæði Þúsundir Roingja-múslima flýja nú Rakhine-hérað í Mjanmar og yfir til Bangladess. 12. september 2017 08:22
Skrópar á allsherjarþingi en óttast ekki að vera gagnrýnd Aung San Suu Kyi, leiðtogi Mjanmar og friðarverðlaunahafi, sætir gagnrýni fyrir að fordæma ekki ofbeldi í garð Rohingja í landi sínu. 14. september 2017 07:00