Pizzastaðurinn hans LeBrons James vex og dafnar á methraða Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. júlí 2017 23:30 LeBron James. Vísir/Getty
Bandaríkjamenn eru svo hrifnir af Blaze Pizza, svo hrifnir að LeBron James og fjárfestingarfélagar hans hafa 25-faldað virði fyrirtækisins á fimm árum. NBA-leikmaðurinn LeBron James er einn allra stærsta íþróttastjarna Bandaríkjanna og hann hefur ekki bara tekið góðar ákvarðanir inn á körfuboltavellinum. Kappinn virðist hafa einnig auga fyrir góðum viðskiptatækifærum. ESPN segir frá. LeBron James og félagar lögðu til eina milljón dollara til að stofnsetja bökustaðinn Blaze Pizza árið 2012 og nú er eignarhlutur þeirra í Blaze Pizza virði 25 milljón dollara. James á nú tíu prósent hlut í Blaze Pizza en það lítur út fyrir að hann græði líka vel á því þegar leyfin verða seld áfram víðsvegar út um Bandaríkin. Blaze Pizza hefur vaxið gríðarlega á þessum stutta tíma og það þótt að samningur LeBron við McDonald's kæmi í veg fyrir að hann mætti auglýsa pizza-staðinn sinn. Fréttirnar að hann ætti í staðnum voru hinsvegar nægileg hvatning fyrir suma. Staðurinn hefur líka slegið í gegn og fólk er greinilega ánægt með bökurnar. Það eru bjartir tímar framundan hjá Blaze Pizza sem er nú sá matstölustaður sem hefur stækkað mest á stystum tíma í sögu Norður-Ameríku. Alls eru nú til 200 staðir en stefnan hefur verið sett á Blaze Pizza staðirnir verði orðnir þúsund fyrir árið 2022. Eftir fimm ár gætu því heildarsölutölur Blaze Pizza verið orðnar í kringum einn milljarð dollara.
NBA Mest lesið Fyrrum dýrasti enski leikmaðurinn mættur í F-deildina Fótbolti Stuðningsmenn Palace mótmæla ákvörðun UEFA Fótbolti Elvar Már til Póllands Körfubolti Dæmdur fyrir að myrða tengdaföður sinn Sport Dagskráin í dag: Snóker og golf, aftur Sport „Við erum alls ekki hættir, þetta er rétt að byrja“ Fótbolti Erlendum leikmönnum Ármanns fækkar um einn Körfubolti Ásthildur skoraði átján mörk í stórsigri íslensku stelpnanna Handbolti Uppgjörið: Breiðablik - Egnatia 5-0 | Algjör einstefna á Kópavogsvelli Fótbolti Sænsku meistararnir örugglega áfram Fótbolti Fleiri fréttir Elvar Már til Póllands Erlendum leikmönnum Ármanns fækkar um einn Oladipo með augastað á endurkomu Enginn Kobe Bryant á topp tíu yfir þá bestu í sögunni Wembanyama fær grænt ljós frá læknateymi Spurs Raggi Nat á Nesið Sautján ára troðsludrottning vekur athygli Stólarnir semja við spænskan leikstjórnanda Sjö körfuboltamenn að fá íslenskan ríkisborgararétt Strákarnir unnu Slóvena á EM Fjögur lið sýnt LeBron áhuga Stjarna Cavs trúlofuð Grammy verðlaunahafa Doncic fékk að vita af sölunni en ekki LeBron Skellur í fyrsta leik hjá guttunum okkar Ísköld Clark stýrði sókninni eins og hershöfðingi Líkti Cooper Flagg við Kobe Bryant Áframhaldandi NBA tengingar í Bónus deildinni Taka einn efnilegasta leikmanninn frá Íslandsmeisturum Hauka Julio de Assis og Luka Gasic í Stjörnuna Birkir Hrafn í NBA akademíunni „Þetta gerist rosa hratt“ Sengun í fantaformi í sumarfríinu Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Sjá meira