Fundu meira en 250 hauskúpur í fjöldagröf í Mexíkó Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 14. mars 2017 22:27 „Veracruz er ein stór fjöldagröf. Það er stærsta fjöldagröfin í Mexíkó og jafnvel í heiminum.“ vísir/getty
Yfirvöld í Mexíkó hafa fundið meira en 250 hauskúpur í því sem virðist vera leynileg fjöldagröf í úthverfi borgarinnar Veracruz á vesturströnd landsins. Saksóknarinn Jorge Wincklear segir að líklegast séu í gröfinni lík fólks sem myrt var af eiturlyfjagengjum fyrir nokkrum árum. „Í mörg ár hvarf fólk vegna þess að það var tekið og myrt af þessum gengjum en andvaraleysi yfirvalda varð til þess að ekkert var að gert,“ er haft eftir Wincklear á vef Guardian. Ekki hefur verið upplýst hvenær hauskúpurnar fundust eða hver fann þær en hópar ættingja fólks sem hefur sporlaust í gegnum árin hafa staðið fyrir uppgreftri á ýmsum stöðum sem og bent yfirvöldum hvar grafir sé mögulega að finna. Hauskúpurnar og önnur bein fundust á skógi vöxnu svæði, kallað Colinas de Santa Fe, þar sem aktívistar hafa undanfarin misseri verið að kanna hvort að lík leynist mögulega þar. Að sögn saksóknarans á eftir að grafa upp meira á svæðinu og eru allar líkur á því að fleiri bein og/eða lík finnist þar. „Ég get ekki ímyndað mér hversu margir eru grafnir þarna,“ segir Wincklear en bendir á að í ríkinu Veracruz, sem samnefnd borg er í, séu 2400 manns á lista yfir horfið fólk sem enn er ófundið. „Veracruz er ein stór fjöldagröf. Það er stærsta fjöldagröfin í Mexíkó og jafnvel í heiminum.“
Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Nálgist neyðarástand Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Innlent Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Innlent Lentu aftur í óförum Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Sjö ára dómur Innlent Fleiri fréttir Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Sjá meira