Fótbolti

Þetta getur verið algjör gildra

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Margrét Lára Viðarsdóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins.
Margrét Lára Viðarsdóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins. Vísir/Anton
Ísland leikur sinn fyrsta útileik í undankeppni EM 2017 í dag er stelpurnar okkar mæta Makedóníu í Skopje. Ísland vann fyrsta leik sinn í riðlinum, 2-0 gegn Hvíta-Rússlandi, í síðasta mánuði en hefur ekki efni á því að slá af í dag.

„Þetta getur verið algjör gildra,“ sagði Freyr Alexandersson við Fréttablaðið í gær. „Ísland hefur á síðustu árum tapað dýrmætum útivallarstigum gegn liðum sem hefur reynst dýrkeypt, svo sem gegn Slóv­eníu og Belgíu.“

Ísland var í efsta styrkleikaflokki þegar dregið var í riðla í undankeppninni og kemst beint á EM með því að vinna riðilinn. Útivallarstigin eru því afar dýrmæt.

Ættu ekki að komast í hóp

„Þessi leikur snýst um okkur og hvernig við munum spila,“ segir Freyr. „Natasia Andonova, sem spilar með Söru Björk [Gunnarsdóttur] hjá Rosengård í Svíþjóð er gríðarlega öflugur leikmaður en aðrir leikmenn í landsliði Makedóníu ættu ekki að komast í hóp hjá okkur. Hugarfarið þarf því að vera í lagi.“

Freyr segir að ferðalagið til Makedóníu hafi gengið að mestu leyti vel, sem og æfingar fyrir leikinn. „Það hafa verið einhverjir hnökrar eins og gengur og gerist á löngu ferðalagi og þegar maður kemur í aðra menningu. En heilt yfir er ég ánægður,“ segir Freyr sem heldur með lið sitt til Slóveníu eftir leikinn. Þar á Ísland leik á mánudag.

Reiknar ekki með Hólmfríði

Þær Hólmfríður Magnúsdóttir og Guðbjörg Gunnarsdóttir, sem báðar spila í Noregi, hafa verið að glíma við meiðsli en Freyr reiknar ekki með því að sú fyrrnefnda nái leiknum í dag.

„Miðað við hvernig henni leið á æfingunni [í gær] þyrftu hlutirnir að gerast ansi hratt hjá henni til að hún næði leiknum,“ segir Freyr en Hólmfríður á 99 landsleiki að baki.

„Hún vill auðvitað ná hundraðasta leiknum sínum en það borgar sig í svona aðstæðum að sýna skynsemi. Ég vil að mínir leikmenn séu heilir,“ segir Freyr og bætir við að líklegt sé að hún nái leiknum í Slóveníu á mánudag.

Guðbjörg hefur verið að glíma við meiðsli í öxl en kenndi sér ekki meins á æfingunni í gær. „Það hefur verið mikið álag á henni en hún er nú komin í gang og ég reikna með henni í dag.“

Makedónía er að spila sinn fyrsta leik í undankeppninni í dag en hann hefst klukkan 11.30 að íslenskum tíma.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×