Umfjöllun, viðtöl og myndir: Fylkir 3 - 0 ÍBV | Enn geta Eyjamenn ekki skorað mark Jóhann Óli Eiðsson á Fylkisvelli skrifar 17. maí 2015 16:00 Ásgeir Eyþórsson í baráttu við Gunnar Þorsteinsson og Tom Skogsrud í Lautinni í dag. vísir/stefán
Fylkir tók á móti ÍBV í fyrsta leik þriðju umferðar Pepsi-deildar karla. Fylkismenn voru fyrir leikinn taplausir eftir tvö 1-1 jafntefli í fyrstu tveimur umferðunum meðan Eyjamenn voru án stiga og höfðu enn ekki skorað mark. Það blés örlítið í átt að Árbæjarlaug og sóttu heimamenn undan vindi í fyrri hálfleik. Þeir reyndu í nokkur skipti að nýta vindinn, meðal annars tvisvar úr horni, en allt kom fyrir ekki. Heimamenn voru miklu meira með boltann í fyrri hálfleik en án þess að skapa sér nokkurt hættulegt færi. Þeir ógnuðu með langskotum og í tvígang þurfti Guðjón Orri að taka á til að verja skot þeirra. Eyjamenn áttu eiginlega besta færi fyrri hálfleiksins þegar Ian Jeffs náði ágætu skoti af markteigshorni en Bjarni varði frá honum. Það var líka eina nánast eina færi Eyjamanna í leiknum. Þeir lágu aftarlega og voru skipulagðir en þeim gekk ekkert að koma boltanum fram á við. Sendingarnar voru ómarkvissar og komust sjaldan til skila. Jonathan Glenn spilaði sem fremsti maður og hafði greinilega það hlutverk að halda boltanum meðan liðsfélagar hans færðu sig ofar á völlinn. Glenn hékk yfirleitt of lengi á boltanum og þegar hann losaði sig við hann voru Fylkismenn allir komnir til baka í sínar stöður. Hefði hann eytt eilítið minni tíma í verkefnið hefðu gestirnir getað verið hættulegir en þeir ógnuðu nær ekkert. Í hálfleik var markalaust og framan af síðari hálfleiknum var það sama upp á teningnum. Færi leiksins voru fá og flestir sénsarnir komu af löngu færi. Það breyttist þegar korter lifði leiks en þá skoraði Oddur Ingi Magnússon mark með skalla eftir sendingu bakvarðarins Stefáns Ragnars Guðlaugssonar. Við þetta var eins og vörn ÍBV, sem hafði verið öguð og haldið vel fram að þessu, stimplaði sig hreinlega út. Hausinn var kominn hálfa leið í Herjólf. Tveimur mínútum síðar hafði Oddur bætt við öðru marki og undir lokin skallaði Tonci Radovinkovic boltann í markið eftir aukaspyrnu. Í þriðja markinu var sem enginn Eyjamaður hefði áhuga á að dekka Tonci því hann var aleinn og hvernig maður nálægt honum. Niðurstaðan öruggur þrjú núll sigur heimamanna. Þrátt fyrir að mörkin hafi látið bíða eftir sér og þeir ekki skapað sér mikið hafði maður alltaf á tilfinningunni að Fylkir gæti sett inn mark. Sú tilfinning var ekki til staðar þegar ÍBV var með boltann. Jóhannes Harðarson virðist eiga ærið verkefni fyrir höndum. Sóknarleikur liðsins var ekki upp á marga fiska og liðið ógnaði helst eftir föst leik atriði. Það gekk illa að vinna horn og aukaspyrnur og því voru þau alls ekki mörg. Mögulega tekst nýju erlendu leikmönnunum að stoppa í þau göt sem þarf. Með svipaðri frammistöðu og í dag er klárt mál að ÍBV mun ekki skora mörg mörk í sumar. Liðið hefur nú ekki skorað í rúmar 280 mínútur á þessu Íslandsmóti og að auki bætast við 180 mínútur í síðustu tveimur leikjum liðsins á síðasta móti. Síðasta mark liðsins kom á 68. mínútu í 3-3 jafntefli á KR-vellinum í 20. umferð Pepsi-deildarinnar í fyrra. Það skoraði Gunnar Þorsteinsson. Ef gert er ráð fyrir fjögurra mínútna uppbótartíma í hverjum leik liðsins þýðir það að 492 mínútur eru liðnar frá því að ÍBV skoraði síðast mark á Íslandsmótinu. Árbæingar geta gengið sæmilega sáttir frá leiknum. Þeir virtust aldrei eiga á hættu að fá mark á sig og voru öruggir í sínum aðgerðum. Eflaust hefðu þeir viljað skapa sér meira. Vörnin var afar þétt og bakverðirnir Stefán og Daði áttu sína spretti fram á við. Löng innköst Stefáns og spyrnur Daða sköpuðu usla. Helst er hægt að setja út á frammistöðu Ingimundar Níelss Óskarssonar sem var vart sjáanlegur fyrir utan eitt skot í fyrri hálfleik. Einnig má nefna að sendingar Jóhannesar Karls Guðjónssonar voru á tíðum ónákvæmar en það slapp í dag. Heil umferð fer fram í Pepsi-deildinni á miðvikudag. Þá fá Fylkismenn KR-inga í heimsókn í þráðbeina útsendingu á Stöð 2. Eyjamenn fá nýliða Leiknis niður í Suðurey og hljóta að ætla sér sigur.Jóhannes Harðarson: Klúðruðum einföldum hlutum sem eiga ekki að klikka „Það er grátlegt að þetta fari svona í lokin hjá okkur,“ sagði Jóhannes Harðarson eftir að hans drengir í ÍBV höfðu tapað 3-0 fyrir Fylki. „Framan af fannst mér vinnuframlagið hjá okkur vera mjög gott og við vera að gera vel.“ Eyjaliðið skapaði sér lítið í leiknum og þegar fimmtán mínútur voru eftir virtust varnarmenn liðsins tapa einbeitingunni algerlega. „Við gerum okkur seka um mistök sóknarlega og varnarlega. Við komum okkur í ágætis stöður en klikkuðum á snertinum og sendingum sem á ekki að gerast. Ég veit síðan hreinlega ekki hvað gerðist á 75. mínútu. Við missum hausinn algerlega, fáum mark á okkur og annað strax í kjölfarið. Ég mun skoða þetta en hef enga skýringu á þessu núna. Þetta er hlutir sem mega ekki gerast.“ „Við komum okkur oft í ágætis stöður en þetta klikkar svo á síðasta þriðjungnum. Við skemmdum fyrir okkur sjálfir. Við vorum á erfiðum útivelli og nýttum okkur ekki það sem við sköpuðum meðan þeir kláruðu sitt,“ segir Jóhannes. ÍBV bætti við sig erlendum leikmönnum og aðeins annar þeirra kom við sögu í kvöld. „Barden kom inn á og að auki fengum við danskan leikmann í gær sem náði bara einni æfingu. Við ákváðum að bíða því með hann. Þeir koma til með að styrkja hópinn en þetta er aðallega spurning um að þeir sem fyrir eru rífi sig í gang því þeir eiga meira inni. Það er ekki nóg að leggja sig bara fram í 75 mínútur, það verður ða klára níutíu,“ segir Jóhannes að lokum.Ásmundur Arnarsson: Töluðum fyrir leik um að þetta yrði þolinmæðisverk „Við töluðum um það fyrir leik að þetta yrði erfitt og það kom á daginn,“ sagði Ásmundur Arnarsson. Líkt og áður segir voru Fylkismenn sterkari aðilinn í leiknum án þess þó að skapa mikið framan af. Þegar upp var staðið hafði liðið hins vegar skorað þrjú mörk. „Þetta var erfitt hjá okkur í fyrri hálfleik. Okkur gekk ekki nógu vel að halda boltanum innan liðsins og við sköpuðum okkur ekki nægilega mörg færi. Við vorum þéttir til baka og þeim tókst að sama skapi ekki að skapa sér margt.“ Undir lok leiksins opnuðust flóðgáttir og Fylkismenn skoruðu þrjú mörk á tæpum tíu mínútna kafla. „Mér fannst við góðir í síðari hálfleik og ráða algjörlega leiknum. Það tók langan tíma að fá markið en þegar það kom þá fylgdu fleiri og við sigldum þessu heim,“ segir Ásmundur.vísir/stefán
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Leik lokið: Stjarnan - Tindastóll 91-86 | Oddaleikur um Íslandsmeistaratitilinn staðreynd Körfubolti Uppgjörið: Afturelding - KR 4-3 | Heimasigur eftir tvöfalda endurkomu Íslenski boltinn Glódís fagnaði titlunum í þýskum þjóðbúningi á troðfullu torgi Fótbolti Sjáðu ljótt brot Hlyns sem gerði Audda reiðan Körfubolti Uppgjörið: Fram - Vestri 1-0 | Frammarar stöðvuðu sigurgöngu Vestra Íslenski boltinn Rombley fluttur á sjúkrahús með sjúkrabíl Körfubolti „Ég var ekki sáttur með sjálfan mig“ Körfubolti Átti Henderson að fá rautt spjald? Enski boltinn Uppgjörið: ÍBV - KA 0-0 | Ekkert samba í sólinni Íslenski boltinn Glæsimark Rice gulltryggði Arsenal Meistaradeildarsæti Enski boltinn Fleiri fréttir Í beinni: Afturelding - KR | Skemmtikraftarnir mæta í Mosfellsbæinn Gabríel Aron skoraði þrennu í fyrri hálfleik Uppgjörið: Fram - Vestri 1-0 | Frammarar stöðvuðu sigurgöngu Vestra Uppgjörið: ÍBV - KA 0-0 | Ekkert samba í sólinni Sjáðu glæsimark Úlfu, stórsigur Stólanna, sjóðheita Þróttara og Þór/KA þrennuna Uppgjörið: Þróttur - FH 4-1 | Sjóðheitir Þróttarar völtuðu yfir FH Uppgjörið: Fram - Þór/KA 1-3 | Tvö mörk frá Söndru Maríu í sigri Þór/KA Gleymdu búningum svo bæði liðin eru merkt Stjörnunni Sjáðu mörkin: Berglind í hefndarhug með fleiri en allt Valsliðið í sumar Sætur sigur HK og Vilhelm bjargaði stigi fyrir ÍR „Þurfa allar og við þjálfararnir að líta í eigin barm“ Uppgjörið: Breiðablik - Valur 4-0 | Berglind refsaði gamla liðinu í stórsigri Selirnir verða heiðursgestir á fyrsta heimaleik KR Þróttur mætir bikarmeisturunum Þeir bestu (25.-21. sæti): Kolbeinn kafteinn, raðsigurvegarinn í markinu, Blikahetjur og þrumuskot suður með sjó Fegin að vera komin heim: „Þetta endaði ekkert vel“ Allt annar andi vestur í bæ en þegar hún var síðast í KR Uppgjörið: Breiðablik - Vestri 1-2 | Vestri tryggði sér síðasta farseðilinn í 8-liða úrslit Bikarævintýri Fram heldur áfram Markamaskínan Tokic og margfaldur Íslandsmeistari í 5. deildina „Elska að horfa á FH“ Þeir bestu (30.-26. sæti): Markvörður stóru augnablikanna, varnargoð úr Eyjum og Vesturbænum, Smalinn og listamaðurinn Bestu mörkin: Uppgjör fyrstu fimm umferða Bestu deildarinnar Stjarnan þurfti vítaspyrnukeppni gegn Kára í Akraneshöllinni Afturelding lagði ÍA á Akranesi og ÍBV hefndi sín Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Þór komið áfram eftir öruggan sigur á Suðurlandi Einn besti leikmaður KR frá næsta mánuðinn hið minnsta Víðir og Reynir ekki í eina sæng Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast Sjá meira
Leik lokið: Stjarnan - Tindastóll 91-86 | Oddaleikur um Íslandsmeistaratitilinn staðreynd Körfubolti
Þeir bestu (25.-21. sæti): Kolbeinn kafteinn, raðsigurvegarinn í markinu, Blikahetjur og þrumuskot suður með sjó
Þeir bestu (30.-26. sæti): Markvörður stóru augnablikanna, varnargoð úr Eyjum og Vesturbænum, Smalinn og listamaðurinn
Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast
Leik lokið: Stjarnan - Tindastóll 91-86 | Oddaleikur um Íslandsmeistaratitilinn staðreynd Körfubolti