Rúnar Páll: Það er pressa í Garðabænum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. apríl 2015 22:15 „
Okkur gekk mjög vel í fyrra, það er ekkert launungarmál. Það lá gríðarleg vinna að baki þeim árangri. En við fáum ekkert fyrir það núna,“ sagði Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Íslandsmeistara Stjörnunnar, í samtali við Guðjón Guðmundsson í kvöldfréttum Stöðvar 2. Stjarnan vann sem kunnugt er sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í karlaflokki í sögu félagsins eftir dramatískan sigur á FH í úrslitaleik 4. október í fyrra. Stjörnumanna bíður nú það erfiða verkefni að verja Íslandsmeistaratitilinn og Rúnar segir að það séu gerðar kröfur um árangur í Garðabænum. „Það er pressa á okkur, fyrir utan liðið og í Garðabænum. En við pælum ekkert mikið í því. Við ætlum að gera okkar besta og ná góðum úrslitum,“ sagði Rúnar. Stjörnumenn hafa misst fimm sterka leikmenn frá síðasta tímabili en Rúnar segir að skörð þeirra verði að einhverju leyti fyllt með ungum og uppöldum leikmönnum. „Við tókum þá ákvörðun síðastliðið haust að byggja þetta svolítið upp á okkar leikmönnum sem tókst ágætlega í fyrra. „Þeir leikmenn eru árinu eldri og reyndari núna og við ætlum ekkert að breyta út af okkar hugmyndafræði,“ sagði Rúnar en Stjörnumenn fengu góðan liðsstyrk í dag þegar færeyski landsliðsmarkvörðurinn Gunnar Nielsen samdi við félagið. Innslagið í heild sinni má sjá hér að ofan.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Ein besta markvarsla sem ég hef séð“ Fótbolti Seinna spjaldið var ekki viljandi: „Er bara pirraður og missi hausinn“ Íslenski boltinn LIV-kylfingar mega áfram taka þátt í Ryder-bikarnum og PGA-meistaramótinu Golf Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum Handbolti Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Handbolti „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ Handbolti Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Handbolti Atlético lagði sprækt lið Leipzig Fótbolti Rautt spjald snemma leiks dýrt spaug fyrir Börsunga Fótbolti „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Handbolti Fleiri fréttir Seinna spjaldið var ekki viljandi: „Er bara pirraður og missi hausinn“ Uppgjörið: Afturelding - Fjölnir 3-1 | Brenndu víti en tóku tveggja marka forystu Húbba Búbba kippt af dagskrá: „Það eina sem ég spila í Víkinni er fótbolti“ Eftirsjá Gary Martin: „Mín skoðun, fólk mun ekki vera sammála henni“ Utan vallar: Total-fótboltamaðurinn sem rétti Blikakúrsinn „Ég á Íslandi líf mitt að þakka“ Stúkan: „Sama hvað hann gerir ekki gefa honum gult spjald“ Keflavík í góðri stöðu „Mér finnst að allar þessar krúsídúllur eigi að bíða“ Þóra vonar að Tinna finni sér annað lið: „Kæmi mér á óvart ef það yrði ekki slegist um hana“ Flestir mæta á heimaleiki Blika Sjáðu heimsókn Nabblans á Meistaravelli Svona raðast leikirnir í Bestu deild karla Björn Daníel brattur: „Ætli þetta sé ekki hrörnun vöðvanna sökum aldurs?“ Sjáðu mörkin úr stórsigrum Vals og Víkings Rifjuðu upp þegar Gummi spurði strákana eftir tvær umferðir hvort KR gæti orðið meistari Lárus Orri ekki enn búinn að fyrirgefa Graham Potter: „Hann var svolítið linur“ Rúnar Páll: Fáránlega mikið af mörkum á okkur sem boðar ekki gott Aron: Að það þurfi tæklingu til þess að kveikja á liðinu finnst mér lélegt „Þetta er fokking Valur-KR og ef menn fá ekki að kljást í þeim leik þá er eitthvað að“ Arnar: Hleyptum þeim sjaldan úr skotgröfunum Uppgjörið: Valur - KR 4-1 | Valsarar sleppa ekki takinu á Vesturbæingum Uppgjörið: Fylkir - Víkingur- 0-6 | Miskunnarlausir Víkingar á toppnum Laus við veikindin og klár í slaginn Sjáðu markaflóðið úr Bestu deild karla í gær „Það er ekki öllum sem finnst þetta skemmtilegt“ „Gífurlega svekkjandi augnablik“ „Held það vilji það allir sem fylgjast með boltanum“ Uppgjörið: Breiðablik - HK 5-3 | Blikar völtuðu yfir nágrannana í síðari hálfleik Heimir: Þetta víti var brandari Sjá meira