Segir það vera sín stærstu mistök að hafa ráðið Guðjón Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. október 2014 18:12 Guðjón Þórðarson. Vísir/Daníel
Jónas Þórhallsson formaður Knattspyrnudeildar Grindavíkur, segir það í samtali við Víkurfréttir hafa verið sín stærstu mistök að ráða Guðjón Þórðarson sem þjálfar meistaraflokks Grindavíkur. Hæstiréttur staðfesti í gær úrskurð Héraðsdóms Reykjaness og dæmdi að knattspyrnudeild Grindavíkur skuli greiða Guðjóni Þórðarsyni 8,4 milljónir króna í skaðabætur fyrir vangoldin laun. „Það voru vonbrigði en þetta eru okkar örlög. Þetta er bara búið og gert. Við þurfum að fara í aðgerðir og laga til í rekstrinum. Svona hugsjónastarf má ekki við svona skakkaföllum,“ sagði Jónas Þórhallsson í viðtali við Víkurfréttir. Jónas viðurkennir að hann sjái eftir að hafa samið við Guðjón Þórðarson á sínum tíma en þetta var í þriðja sinn sem hann reyndi að fá Guðjón til að þjálfa Grindavíkurliðið. Grindavík réði Guðjón í nóvember 2011 en í október var Guðjóni sagt upp hjá BÍ/Bolungarvík af fjárhagsástæðum. Jónas segir að Heimir Hallgrímsson, fráfarandi þjálfari ÍBV, hafi verið nálægt því að verða þjálfari Grindvíkinga en Eyjamaðurinn gerðist í staðinn aðstoðarþjálfari íslenska karlalandsliðsins. „Ég vildi ráða hann 1999 þá fór hann til Stoke. Árið 2005 sveik hann okkur og fór til Keflavíkur, þá fékk ég slæma mynd af honum. Þegar við svo loks réðum hann þá var ég á leiðinni að ráða Heimi Hallgrímsson. Þá var mér var tjáð að Guðjón vildi koma til Grindavíkur," sagði Jónas og bætti við: „Það var búið að benda mér á ýmsa galla hjá manninum en hann hafði árangur í farteskinu. Ég hafði samt trú á að hann gæti gert góða hluti hér og fór með það inn á borð til stjórnarinnar og þar var það samþykkt. Ég ber fulla ábyrgð á þessu og ætla ekki að benda á einn eða neinn. Þetta eru mín stærstu mistök og ég reyni ekki að koma þeim á einn eða neinn. Ég ber ekki kala til eins né neins,“ segir Jónas í viðtalinu sem má finna allt hér.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Snéru heim eins og rokkstjörnur og komust á súluna á Astró Fótbolti Íslendingalið í bullandi tapi og getur ekki sótt fleiri stjörnur Handbolti Köstuðu blysum en segja hina hafa hrækt og hellt bjór á leikmenn Handbolti Fékk fjóra bakka af eggjum fyrir að vera maður leiksins Fótbolti Heimsóttu Hásteinsvöll: „Það eru ekkert allir sáttir við þetta“ Íslenski boltinn Hvorki zombie-bit né tattú Fótbolti Sjáðu nýjan þjálfara Íslands kynna sig Körfubolti Hópslagsmál í NBA og sjö hent úr húsi Körfubolti Glódís ekki með í landsleikjunum Fótbolti Pekka Salminen nýr landsliðsþjálfari Körfubolti Fleiri fréttir Heimsóttu Hásteinsvöll: „Það eru ekkert allir sáttir við þetta“ Vel vopnaðir tökumenn: „Djöfull er þetta góður klútur“ „Maður er pínu hræddur fyrir þeirra hönd“ Besta-spáin 2025: Að finna sér nýjan samastað í tilverunni „Gerðum gott úr þessu“ Uppgjörið: Breiðablik - KA 3-1 | Breiðablik er meistari meistaranna Herra Víkingur kvaddur: „Rosalega gott tækifæri til að hætta“ Skelfileg meiðsli Stefáns Árna: „Fóturinn var í mjög ljótri stöðu“ Frumraun Gylfa í beinni í kvöld „Mér finnst þeir geta farið í báðar áttir“ Besta-spáin 2025: Meðvindur þrátt fyrir mótbyr Sænska stórveldið keypti Ísabellu Söru Grindvíkingar sækja um í hamfarasjóð UEFA Heimi finnst aldursumræðan algjörlega galin Ný treyja KR kynnt með pompi og prakt „Þetta er veikara lið“ Besta-spáin 2025: Leiðin orðin grýttari „Mjög krefjandi tímabil framundan“ „Lærir með hverju árinu hvað maður á að hlusta á og hvað ekki“ Besta-spáin 2025: Ætla að brosa aftur í mótslok Aftur hefur KR leik í Laugardalnum Nýi markvörður KA kom snemma inn af bekknum í fyrsta leik Ísabella Sara sögð á leið til Rosengård Besta auglýsing Aftureldingar: „Þetta er enginn helvítis Pizzabær“ „Veturinn eins og best verður á kosið“ Besta-spáin 2025: Í túninu heima Víkingar framlengja við „besta markmanninn í Bestu deildinni“ Þór/KA vann í vítaspyrnukeppni og mætir Breiðabliki í úrslitaleik LUÍH: Heimir var um 90 mörkum frá 100 marka veggnum Strákar á Selfossi söfnuðu fé fyrir jafnaldra sinn í HK Sjá meira